ÍSAN1OF05 - Íslenska sem annað mál - Orðaforði og lesskilningur

Í boði : Alltaf

Lýsing

Lögð er áhersla á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins. Nemendur eru þjálfaðir í réttum framburði, lestri, hlustun, tali og ritun. Einföld málfræðiatriði eru kynnt og útskýrð. Áhersla lögð á uppbyggingu orðaforða og viðeigandi málsnið. Umfjöllun um Ísland og íslenska menningu. Efni á netinu kynnt og ýmis konar annað ítarefni, s.s. tónlist og myndefni.