ÍSAN1BE05 - Íslenska sem annað mál - Grunnkunnátta 1A
							
																																
	
	
													
											
							Undanfari : Enginn
						
																
							Í boði
							: Alltaf
						
														 
					
		
					
				Lýsing
				Megináhersla lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins. Nemendur eru þjálfaðir í réttum framburði, lestri, hlustun, tali og ritun. Einföld málfræðiatriði eru kynnt og útskýrð. Áhersla lögð á uppbyggingu orðaforða og viðeigandi málsnið. Umfjöllun um Ísland, íslenska menningu og íslenskumælandi málsvæði. 
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- þeim orðaforða sem þarf til að  geta lesið, hlustað á, skilið og rætt um einföldustu atriði
- helstu grundvallarþáttum íslensks málkerfis, s.s. framburði, tónfalli og einfaldri setningaskipan
- einföldum samskiptum og tjáningu í mæltu og rituðu máli
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja talað mál um kunnuglegt efni ef talað er hægt og skýrt
- taka þátt í einföldum samræðum og nota viðeigandi málsnið
- kynna sjálfan sig á einfaldan hátt
- rita stutta, einfalda texta um kunnuglegt efni
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
- geta fylgt einföldum fyrirmælum og skilið kveðjur og kurteisisávörp
- lesa einfalda texta sem innihalda algengan orðaforða sem tengjast nemandanum, fjölskyldu, umhverfi og áhugamálum
- taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir og beita málsniði við hæfi
- segja á einfaldan hátt frá sjálfum sér, fjölskyldu, umhverfi og áhugamálum
- geta ritað stutta, einfalda texta í nútíð