HÚSA3HU09 - Timburhús 1 - Gólf- og veggjargrind

Undanfari : TRÉS1VT08
Í boði : Haust

Lýsing

Í áfanganum er kennd smíði staðbyggðra timburhúsa með áherslu á undirstöður, burðar- og milliveggi. Farið er í klæðningu, einangrun, uppsetningu glugga, hurða, stiga og innréttinga auk almenns frágangs. Meðal þess sem tekið er fyrir er útfærsla einstakra byggingarhluta, efnisval og staðsetning á stoðum og hvernig á að koma fyrir einangrun og rakavörn. Áfanginn er að mestu verklegur þar sem nemendur fá þjálfun í almennum verkþáttum húsasmíða eins og meðferð áhalda og tækja, notkun smíðisfestinga, yfirborðsmeðferð, öryggis- og gæðamálum m.m. Áfanginn er á námsbraut í húsasmíði og lögð er áhersla á sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt hæfni til að vinna með öðrum í hóp


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • uppbyggingu berandi timburveggja
  • smíði gólf- og hæðaskila í timburhúsi
  • uppbyggingu eldvarnarhólfa
  • stífingu timburhúsa
  • yfirborðsmeðferð smíðaviðar
  • mismunandi undirstöðum fyrir timburhús
  • algengum útfærslum á undirstöðum (úr steini og tré)
  • festingum gólfvirkis við sökkul- eða súluundirstöður
  • stífingu og afréttingu gólfbita
  • stífingum á grindarveggjum, staðsetningu stoða og festingar
  • algengustu útfærslum á loftræstum timburklæðningum á útveggi
  • uppsetningu á vindvörn og klæðningagrind og reglur um loftun
  • frágangi á borðaklæðningum í kringum veggop og á hornum og brúnum
  • uppsetningu lagnagrindar og afréttingu hennar
  • gólfklæðningum á gólfbita með tréborðum og gólfplötum
  • yfirborðsmeðferð timburs
  • hvernig á að smíða og setja upp verkpalla og fallvarnir
  • smíði steypumóta fyrir stiga
  • eiginleikum og notkunarsviði algengra burðar- og klæðningakerfa
  • mismunandi festingakerfum og afréttingu þeirra
  • áhöldum og tækjum sem notuð eru við uppsetningu grindar og klæðningar
  • muninum á hefðbundnum steypumótum og flekamótum
  • smíði hefðbundinna steypumóta fyrir einstaka byggingarhluta


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • smíða gólfvirki og hæðaskil með hliðsjón af kröfum um styrkleika, einangrun og eldvarnir
  • greina algengar útfærslur á undirstöðum úr steini og tré
  • greina helstu aðferðir og efni til að verja tré gegn fúa og veðrun
  • ganga frá hurðum og gluggum í timburhús
  • velja áhöld og tæki til uppsetningar á grind og klæðningu


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • taka tréundirstöður í rétta hæð fyrir dregara og stífa af
  • smíða létta innveggi og berandi útveggi úr tré
  • smíða létta innveggi og berandi útveggi með hliðsjón af kröfum um styrkleika, einangrun og eldvarnir
  • smíða þakvirki úr timbri og klæða með algengustu efnum
  • smíða þakvirki og klæða í samræmi við kröfur um styrkleika, einangrun og eldvarnir
  • klæða útveggi með liggjandi og standandi timburklæðningu
  • klæða útveggi með borðaklæðningu í samræmi við kröfur um styrkleika, einangrun og eldvarnir
  • einangra og klæða gólf og veggi innanhúss
  • koma einangrun fyrir og ganga frá rakavarnarlagi
  • setja upp útihurðir og glugga, glerja og ganga frá bæði að utan og innan
  • stilla af karma og festa með tilheyrandi þéttingum
  • glerja og ganga frá með tilheyrandi listum, áfellum og gerektum
  • setja upp innréttingar og tréstiga og ganga frá listum í kverkar m.m.
  • koma fyrir gluggum, hurðum og öðrum íhlutum í steypumót

 

Grunnþættir menntunar

Í húsasmíði eru grunnþættir menntunar órjúfanlegur hluti af verklegu og bóklegu námi. Undirstaða faglegra vinnubragða er fjölþætt læsi, þar sem reynir á tæknilæsi á byggingauppdrætti, talnalæsi við efnistöku og gagnrýnið upplýsingalæsi. Námið hvetur til sjálfbærni með áherslu á umhverfisvitund, lágmörkun efnissóunar og skynsamlega nýtingu auðlinda. Jafnframt er heilbrigði og velferð í forgrunni í gegnum virka vinnuvernd, áherslu á rétta líkamsbeitingu og sterka öryggismenningu. Á verkstæðinu er unnið í anda lýðræðis, mannréttinda og jafnréttis; nemendur temja sér samvinnu, bera ábyrgð á eigin vinnubrögðum og taka þátt í jákvæðri vinnustaðamenningu þar sem öll fá jöfn tækifæri á eigin forsendum. Loks er húsasmíðin sjálf rík af sköpun, þar sem nemendur sameina handverk og skapandi lausnaleit til að takast á við krefjandi útfærslur, reisa mannvirki og efla um leið eigin fagmennsku.

  • Læsi: Lögð er áhersla á læsi í víðum skilningi, þar sem nemendur þjálfast í að lesa úr og túlka teikningar, reikna út efnisnotkun, skilja verklýsingar og setja sig inn í lög og byggingarreglugerðir.
  • Sjálfbærni: Nám og starfshættir mótast af umhverfisvitund og skynsamlegri nýtingu auðlinda. Nemendur þjálfast markvisst í að lágmarka efnissóun, flokka byggingarúrgang og skilja vistspor mannvirkjagerðar.
  • Heilbrigði og velferð: Öryggi og vinnuvernd eru í forgrunni á vinnusvæði. Stuðlað er að vellíðan og líkamlegu heilbrigði með áherslu á rétta líkamsbeitingu við smíðar, örugga vélanotkun og samvinnu.
  • Lýðræði og mannréttindi: Skólabragurinn byggist á samvinnu á verkstæðinu þar sem borin er virðing fyrir manngildi og skoðunum hvers og eins. Nemendur eru hvattir til að bera sjálfstæða ábyrgð á eigin námi og vinnubrögðum.
  • Jafnrétti: Öllum nemendum eru sköpuð jöfn tækifæri til að rækta hæfileika sína og færni. Markvisst er unnið að því að opna augu nemenda fyrir kynskiptum vinnumarkaði í iðngreinum og stuðlað að jafnræði á vinnustað.
  • Sköpun: Verkleg kennsla krefst stöðugrar gagnrýninnar hugsunar og skapandi lausnaleitar við raunhæf verkefni, allt frá hönnun og teikningu til tré- og mótasmíði. Hvatt er til frumkvæðis og litið á mistök sem dýrmæt tækifæri til að auka fagþekkingu.