GLÚT2HH08 - Gluggar og útihurðir
Undanfari : TRÉS1VT08
Í boði
: Haust
Lýsing
Í áfanganum er kennd smíði glugga og útihurða með áherslu á trésamsetningar, vélavinnu og handverk. Nemendur læra um viðartegundir og önnur smíðaefni sem notuð eru í glugga og útihurðir, áhöld og tæki, samsetningaraðferðir, yfirborðsmeðferð og smíðisfestingar. Lögð er áhersla á að nemendur geti gengið úr skugga um gæði þeirra smíðaefna sem unnið er með og að endanlegur smíðishlutur uppfylli kröfur um málsetningar og útlit. Nemendur fá áframhaldandi þjálfun í notkun og umgengni við allar algengar trésmíðavélar og kynnast flóknari vélbúnaði sem sérstaklega tengist glugga- og hurðasmíði. Kennsla er að mestu verkleg þar sem nemendur smíða hluti eftir teikningum og verklýsingum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- umgengni og notkun trésmíðavéla fyrir glugga og hurðasmíði
- vali efna til glugga og hurðasmíða
- smíðaefnum sem notuð eru við gerð glugga og útihurða
- eiginleikum viðar og plötuefnis með tilliti til endingar
- áhöldum og vélum sem notuð eru við smíði glugga og útihurða
- samhengi milli snúnings-, skurðar- og mötunarhraða og yfirborðsgæða
- öryggisreglum og öryggisbúnaði viðkomandi áhalda og tækja
- samsetningaraðferðum á gluggum og útihurðum
- helstu efnissamsetningum sem notaðar eru í gluggum og hurðum
- límtegundum og límhörðnunarkerfum fyrir mismunandi viðartegundir
- samlímingu á tré sem notað er til að smíða bogna og beina íhluti
- öryggisreglum og öryggisbúnaði sem snertir lím og meðferð þess
- yfirborðsmeðferð glugga og útihurða
- aðferðum til að fúaverja og yfirborðsmeðhöndla glugga og útihurðir
- gagnvörn smíðaviðar og efnum til yfirborðsmeðferðar
- öryggisreglum og öryggisbúnaði við fúavörn og yfirborðsmeðferð
- öryggisþáttum og viðhaldi trésmíðavéla
- vinnuaðstöðu og vinnumhverfi
- smíði boginna íhluta og glugga með skapalóni eða CNC-vél
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna eftir teikningum og verklýsingum fyrir glugga- og hurðasmíðar
- nota málma og plast við smíði glugga og útihurða
- brýna og halda við einföldum skurðarverkfærum
- nota og halda við áhöldum, rafmagns- og lofthandverkfærum
- umgangast flóknar trésmíðavélar með tillit til notkunar og öryggismála
- lesa merkingar og flokka efni með tilliti til útlits og styrk
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- velja hentugt smíðaefni með hliðsjón af verkefni hverju sinni
- öðlast innsýn í tæknilega viðarvernd við smíði útiglugga og útihurða
- velja smíðisfestingar og þéttilista með hliðsjón af verkefni
- velja réttar trésmíðavélar bæði til fjölda- og stykkjaframleiðslu
- velja skurðarverkfæri og skurðarhorn út frá viðartegund
- velja verkfæri og skurðarhorn til vinnslu samsíða og þvert á trefjastefnu
- ganga úr skugga um rétta virkni og stillingar véla með aðstoð mæliáhalda
- velja límáburðartæki, þvingur og pressur fyrir glugga- og hurðasmíði
- velja slípi- og málningarkerfi fyrir mismunandi viðartegundir
- smíða glugga og útihurðir með þéttingum og fylgihlutum
- smíða fasta og opnanlega glugga til notkunar utan- og innanhúss
- smíða útihurð með spjöldum ásamt karmi og stáli
- smíða skapalón með hliðsjón af hönnunargögnum
- ganga frá smíðishlut með gleri, þéttilistum og stáli
- staðsetja og taka úr fyrir lömum og skrám í höndum og með vélum
Grunnþættir menntunar
Í húsasmíði eru grunnþættir menntunar órjúfanlegur hluti af verklegu og bóklegu námi. Undirstaða faglegra vinnubragða er fjölþætt læsi, þar sem reynir á tæknilæsi á byggingauppdrætti, talnalæsi við efnistöku og gagnrýnið upplýsingalæsi. Námið hvetur til sjálfbærni með áherslu á umhverfisvitund, lágmörkun efnissóunar og skynsamlega nýtingu auðlinda. Jafnframt er heilbrigði og velferð í forgrunni í gegnum virka vinnuvernd, áherslu á rétta líkamsbeitingu og sterka öryggismenningu. Á verkstæðinu er unnið í anda lýðræðis, mannréttinda og jafnréttis; nemendur temja sér samvinnu, bera ábyrgð á eigin vinnubrögðum og taka þátt í jákvæðri vinnustaðamenningu þar sem öll fá jöfn tækifæri á eigin forsendum. Loks er húsasmíðin sjálf rík af sköpun, þar sem nemendur sameina handverk og skapandi lausnaleit til að takast á við krefjandi útfærslur, reisa mannvirki og efla um leið eigin fagmennsku.
- Læsi: Lögð er áhersla á læsi í víðum skilningi, þar sem nemendur þjálfast í að lesa úr og túlka teikningar, reikna út efnisnotkun, skilja verklýsingar og setja sig inn í lög og byggingarreglugerðir.
- Sjálfbærni: Nám og starfshættir mótast af umhverfisvitund og skynsamlegri nýtingu auðlinda. Nemendur þjálfast markvisst í að lágmarka efnissóun, flokka byggingarúrgang og skilja vistspor mannvirkjagerðar.
- Heilbrigði og velferð: Öryggi og vinnuvernd eru í forgrunni á vinnusvæði. Stuðlað er að vellíðan og líkamlegu heilbrigði með áherslu á rétta líkamsbeitingu við smíðar, örugga vélanotkun og samvinnu.
- Lýðræði og mannréttindi: Skólabragurinn byggist á samvinnu á verkstæðinu þar sem borin er virðing fyrir manngildi og skoðunum hvers og eins. Nemendur eru hvattir til að bera sjálfstæða ábyrgð á eigin námi og vinnubrögðum.
- Jafnrétti: Öllum nemendum eru sköpuð jöfn tækifæri til að rækta hæfileika sína og færni. Markvisst er unnið að því að opna augu nemenda fyrir kynskiptum vinnumarkaði í iðngreinum og stuðlað að jafnræði á vinnustað.
- Sköpun: Verkleg kennsla krefst stöðugrar gagnrýninnar hugsunar og skapandi lausnaleitar við raunhæf verkefni, allt frá hönnun og teikningu til tré- og mótasmíði. Hvatt er til frumkvæðis og litið á mistök sem dýrmæt tækifæri til að auka fagþekkingu.