FORR2LE05 - Forritun - Grunnur í leikjaforritun

Undanfari : ?Óákveðið
Í boði : Haust

Lýsing

Markmið áfangans er að nemendur kynnist hugtökum forritunar og þjálfist í að skrifa kóða með lykkjum, föllum, og skilyrðissetningum. Í áfanganum munu nemendur kynnast grunnatriðum forritunar og er þá leitast við að nota myndræna miðlun á efninu. Nemendur munu kynnast því hvernig hægt er að nota mismunandi verkfæri og búa þannig til sín eigin forrit. Nemendur læra að þekkja einföld forritunarhugtök og geta lýst í stuttu máli hvað forritun er og hvernig hún virkar.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • skilyrðissetningum, föllum og breytum
  • uppbyggingu einfaldra forrita
  • hvernig kóði verður að forriti
  • atburðum í forriti

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota föll í forritun
  • nota atburði í forritun
  • nota skilyrðissetningar í forritun

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • búa til einfalda leiki með opnum lausnum
  • búa til einföld forrit í síma með opnum lausnum
  • búa til einfald forrit í því forritunarmáli sem kennt er í áfanganum

 

Grunnþættir menntunar

Í forritun er unnið með læsi með áherslu á stafrænt læsi, tæknilæsi og hæfni nemenda til að lesa, skilja og skrifa kóða. Nemendur þjálfast í að lesa verkefnalýsingar, villuboð og leiðbeiningar og nýta þær upplýsingar við lausn verkefna. Sjálfbærni tengist ábyrgri og markvissri notkun tækni til að leysa verkefni, einfalda ferla og skapa stafrænar lausnir sem geta haft áhrif á samfélag og framtíðarþróun.

Í tengslum við lýðræði og mannréttindi er lögð áhersla á samvinnu, ábyrgð, virðingu fyrir hugverkum og að lausnir taki mið af fjölbreyttum þörfum notenda. Jafnrétti birtist í því að allir nemendur fái tækifæri til að þróa hæfni sína óháð reynslu, bakgrunni eða fyrri þekkingu. Sköpun birtist í hönnun og þróun eigin forrita og lausna þar sem nemendur prófa hugmyndir, leysa vandamál og endurbæta afurðir sínar.