Lýsing
Framhaldsáfangi í afbrotafræði þar sem lögð er áhersla á að dýpka skilning nemenda á helstu viðfangsefnum greinarinnar með áherslu á gagnrýna hugsun, fræðilega greiningu og beitingu kenninga. Fjallað verður um sérhæfð og alvarleg afbrot, áhrif tæknibreytinga og alþjóðavæðingar, þróun refsinga og sálfræðilega þætti gerenda.
Dæmi um viðfangsefni:
- raðmorð og hugarheimur raðmorðingja
- mannshvörf og rannsóknir á þeim
- hryðjuverk og alþjóðleg viðbrögð
- skipulögð glæpastarfsemi og fórnarlömb hennar
- afbrot í stafrænum heimi og áhrif tækninýjunga
- alþjóðlegur samanburður á afbrotum og refsivörslu
- þróun refsinga í ljósi samfélagsbreytinga
- afbrotasálfræði og sálrænir þættir sem tengjast frávikshegðun
Nemendur læra að greina raunveruleg viðfangsefni afbrotafræðinnar með gleraugum kenninga og beita fræðilegri hugsun við lausn samfélagslegra áskorana. Áhersla er lögð á að styrkja færni nemenda í greiningu, túlkun og stefnumótun.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- sálfræðilegum þáttum sem tengjast raðmorðum og ofbeldi
- rannsóknum á mannshvörfum og aðferðum við leit og greiningu
- hryðjuverkum og alþjóðlegum viðbrögðum við þeim
- skipulagðri glæpastarfsemi og fórnarlömbum hennar
- þróun refsilaga í samtímanum
- afbrotum í stafrænum heimi og nýjum gerðum netglæpa
- alþjóðlegum samanburði á afbrotatíðni og fangelsismálum
- hlutverki afbrotasálfræðinnar við að skýra hegðun gerenda
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita kenningum og aðferðum afbrotafræðinnar við sérhæfð viðfangsefni
- greina flókin mál eins og hryðjuverk eða skipulagða glæpastarfsemi með fræðilegum aðferðum
- skilja hvernig tæknibreytingar og alþjóðavæðing hafa áhrif á þróun afbrota
- greina rannsóknir og kenningar á gagnrýnin hátt
- setja fram rökstuddar lausnir við raunverulegum áskorunum sem tengjast afbrotum
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita afbrotafræði og kenningum í stefnumótun og forvarnastarfi
- túlka og greina gögn og rannsóknir með gagnrýnum hætti
- þróa eigin hugmyndir og lausnir á sviði refsivörslu, forvarna og samfélagslegrar ábyrgðar
Grunnþættir menntunar
Í áfanganum er unnið með grunnþætti menntunar í gegnum fræðilega og ábyrga greiningu á flóknum viðfangsefnum afbrotafræðinnar. Nemendur fjalla um alvarleg afbrot, hryðjuverk, skipulagða glæpastarfsemi, stafræna afbrotahegðun, refsivörslu og afbrotasálfræði og tengja þau við kenningar, rannsóknir og samfélagslegar aðstæður. Áfanginn styður sérstaklega við lýðræði og mannréttindi, jafnrétti, heilbrigði og velferð og félagslega sjálfbærni, þar sem fjallað er um réttarkerfi, fórnarlömb, forvarnir og samfélagslega ábyrgð. Með rannsóknavinnu, umræðum, túlkun gagna og tillögum að úrbótum efla nemendur læsi, siðferðisvitund og skapandi hugsun í tengslum við forvarnir, stefnumótun og samfélagslegt réttlæti.