FATA1SH05 - Fatahönnun - Saumtækni og sniðagerð

Undanfari : Enginn
Í boði : Alltaf

Lýsing

Í áfanganum vinna nemendur með grunnsnið og læra einfaldar sniðabreytingar. Nemendur laga snið að vexti, sauma einfaldar flíkur og máta. Kennd eru grunnformin á líkamanum og einnig flatar teikningar. Nemendur vinna nokkrar prufur í saumtækni. Vettvangsferðir eru farnar og sýning verður á verkefnum nemenda

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • uppbyggingu grunnsniða
  • heiti sniðhluta, þráðrétta og mikilvægi merkinga
  • notkun grunnsniða
  • saumur á einföldum flíkum
  • verklýsingar og flatar teikningar
  • saumtækni
  • að ákveða efnismagn
  • vönduðum vinnubrögðum

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • vinna ýmsar sniðútfærslur út frá grunnsniðum
  • nota heiti sniðhluta og merkingar
  • útfæra og sauma flíkur eftir málum
  • fara eftir verklýsingum
  • geta sett hugmyndir sínar á blað
  • leggja snið á efni þannig að þráðlína sé rétt og efnið vel nýtt

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • vinna sjálfstætt einfaldar sniðútfærslur út frá grunnsniðum
  • sauma einfaldar flíkur eftir grunnsniðum og eigin útfærslum
  • vinna eftir verklýsingum
  • ákveða efnismagn
  • temja sér vönduð vinnubrögð

 

Grunnþættir menntunar

Læsi í fatahönnun felur í sér að nemendur læra að lesa í form, liti, snið og tísku ásamt því að tjá hugmyndir sínar á skapandi hátt með skissum, sniðagerð og saumaskap. Þeir efla sjónrænt læsi, sköpunargáfu og hæfni til að þróa og miðla eigin hönnun.

Sjálfbærni í fatahönnun felur í sér ábyrga nýtingu efna, endurvinnslu og minni sóun. Nemendur læra um áhrif tísku á umhverfi og samfélag og þjálfast í að taka meðvitaðar og skapandi ákvarðanir í hönnunarferlinu.

Heilbrigði og velferð í fatahönnun felur í sér jákvætt og skapandi vinnuumhverfi þar sem áhersla er lögð á öryggi, vellíðan, góða líkamsbeitingu og sjálfstraust nemenda.

Lýðræði og mannréttindi í fatahönnun felast í því að nemendur læra að virða ólíkar hugmyndir, vinna saman og taka ábyrgð á eigin námi og sköpun. Áhersla er lögð á jafnræði, virðingu og að allir fái tækifæri til að tjá sig og þróa eigin stíl og hugmyndir.

Jafnrétti í fatahönnun snýst um að allir nemendur hafi sömu tækifæri til að nýta hæfileika sína og tjá sig á sinn hátt. Lögð er áhersla á virðingu fyrir fjölbreytileika og jafnræði í bæði námi og skapandi vinnu, óháð kyni, uppruna eða getu.

Sköpun í fatahönnun felur í sér að nemendur þróa hugmyndir og lausnir með gagnrýninni hugsun, frumleika og tilraunum. Þeir vinna ferlið frá hugmynd að fullunnu verki og læra að nýta efni, tækni og miðla á skapandi hátt. Mistök eru nýtt sem lærdómur og áhersla er lögð á frumkvæði og eigin tjáningu.