ENSK3FT05 - Enska - Ævintýri í fortíð og nútíð
Undanfari : ENSK3AO05
Í boði
: Haust
Lýsing
Í áfanganum lesa nemendur valin Grimms ævintýri sem verða tengd við Disney teiknimyndir. Nemendur vinna að ýmsum kynningar-, greiningar- og ritunarverkefnum þeim tengdum, svo sem dagbækur sem rýna í bókmenntahugtök. Samanburður verður á upprunalegum ævintýrum sem Disney myndir hafa verið byggðar á. Rýnt verður í hvernig þjóðfélagið hefur breyst.
Í enskukennslu eru grunnþættir menntunar samofnir námsefni og kennsluháttum. Læsi, tjáning og samvinna eru þungamiðja námsins þar sem nemendur þjálfa sig í að lesa, skrifa, hlusta og tala á ensku í fjölbreyttu samhengi. Sköpun og gagnrýnin hugsun eru hlutaðeigandi þegar nemendur túlka texta, mynda sér skoðanir og tjá sig á persónulegan hátt. Lýðræðisleg gildi og virðing fyrir fjölbreytileika birtast í umræðum um menningu, samfélag og manngildi í enskumælandi heimi. Stafrænt læsi og miðlamennt eru æfð í gegnum fjölbreyttar verkefnategundir og notkun á fjölbreyttum textategundum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- menningu og sögulegu samhengi valinna bókmenntaverka
- orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í námi og starfi
- notkun tungumálsins sem er nauðsynleg til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
- menningu þjóða þar sem tungumálið er talað sem og eigin menningu í alþjóðlegu samhengi
- uppruna tungumálsins, útbreiðslu og skyldleika þess við íslenskt mál
- orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi
- hefðum sem eiga við um talað og ritað mál, t.d. mismunandi málsnið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- tjá sig af öryggi um margvísleg málefni tengd bókmenntum og menningu
- lesa texta sem gera miklar kröfur til lesandans, ýmist hvað varðar orðaforða, uppbyggingu eða myndmál
- leggja gagnrýnið mat á texta
- lesa sér til ánægju eða upplýsingar texta sem gera miklar kröfur til lesandans, ýmist hvað varðar orðaforða og uppbyggingu eða myndmál og stílbrögð
- skilja almennt talað mál, jafnvel þar sem frásögnin er ekki sett skipulega fram
- nota tungumálið á sveigjanlegan og árangursríkan hátt í samræðum
- beita ritmálinu í mismunandi tilgangi, fræðilegum og persónulegum, með stílbrigðum og málsniði sem við á og mætir hæfniviðmiðum þrepsins
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita málinu af lipurð og kunnáttu til þess að geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum þar sem fjallað er um persónuleg, söguleg, félagsleg og menningarleg efni
- leggja gagnrýnið mat á texta
- flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinagerð, draga fram aðalatriði, rökstyðja mál sitt og bregðast við fyrirspurnum
- tjá tilfinningar, nota hugarflug, beita stílbrögðum og líkingamáli á skapandi hátt
- skrifa texta með röksemdafærslu
- geta lagt gagnrýnið mat á margvíslega texta og koma því frá sér í ræðu og riti sem metið er með prófum, mats kvörðum og verkefnavinnu
- tjá tilfinningar, nota hugarflugið og beita stílbrögðum, t.d. myndmáli og líkingamáli og skrifa akademíska texta sem metið er með verkefnavinnu