VSME2GR05 - Smáspennuvirki
Undanfari : Enginn
Í boði
: Haust
Lýsing
Í þessum áfanga er lögð áhersla á meðalstór boðskiptakerfi (loftnets-, síma- og tölvulagnakerfi). Einnig fjallar hann um uppbyggingu, uppsetningu og viðhald einfaldra viðvörunarkerfa, svo sem brunaviðvörunarkerfa og þjófavarnarkerfa fyrir heimili og smærri fyrirtæki. Einnig er farið yfir reglur og reglugerðir sem um þessa hluti gilda. Farið er í uppbyggingu og eiginleika helstu dreifikerfa, s.s. dreifingu sjónvarps á VHF- og UHF-rásum, örbylgju, ljósleiðara, og gegnum gervihnetti Farið verður í tæknikröfur sem gerðar eru til viðtöku og uppsetningar á framgreindum kerfum. Nýjungar í dreifingu í gegnum þá miðla sem eru í boði og farið yfir tækni við dreifingu og miðlun efnis til heimila og stofnana. Eiginleikar ljósleiðarans eru kynntir fyrir nemendum og farið verður í þær kröfur sem gerðar eru til ljósleiðaralagna. Fjallað er um reglur um neyðarlýsingar, uppsetningar og gerðir. Fjallað er um íhluti, eiginleika, hlutverk og notkunarsvið.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu íhlutum í loftnetskerfa og eiginleika þeirra
- mismunandi aðferðum við teikningu og útfærslur, ásamt útreikningum á minni loftnetskerfum
- uppsetningu boðskiptalagna og ljósleiðaralagna
- hvaða reglur gilda um sjálvirk brunaviðvörunarkerfi
- reglum og aðferðir sem gilda um uppsetningu eftirlits og viðvörunarkerfa
- helstu reglum og stöðlum um neyðarlýsingar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- teikna og hanna loftnetskerfi mæla minni fjarskiptakerfi
- teikna og velja búnað í brunaviðvörunarkerfin
- lesa úr uppdráttum af brunaviðvörunarkerfunum
- lesa úr mælingum bæði gæði og bilanir
- velja búnað og strengi í eftilits og viðvörunarkerfin
- velja neyðarlýsingarbúnað eftir reglum sem um hann gilda
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- hanna og velja búnað í minni loftnetskerfi
- lesa teikningar og verklýsingar fyrir loftnetskerfi
- velja efni og strengi í boðskiptalagnir (ljósleiðara og cat5)
- velja búnað í brunaviðvörunarkerfi
- hanna minni brunaviðvörunarkerfi, gert úttektarskýrslur og beita reglum um sjálfvirk brunakerfi
- beita reglum og stöðlum um neyðarlýsingar
- færa inn breytingar á uppdrætti,sem gerðar eru á kerfunum
Grunnþættir menntunar
Í þessum áfanga er unnið markvisst að því að efla faglæsi nemenda á táknkerfi, teikningar og tæknilegar upplýsingar. Lögð er rík áhersla á sköpun og lausnamiðaða hugsun þar sem nemendur hagnýta þekkingu sína í raunhæfum verkefnum. Sjálfbærni og fagleg vinnubrögð eru fléttuð inn í námið með áherslu á skynsamlega nýtingu efnis og varanlegar lausnir. Öryggi er ætíð í forgrunni til að tryggja heilbrigði og velferð í vinnuumhverfinu. Lýðræði og mannréttindi birtast í því að ríkt samráð er haft við nemendur; þeim er tryggt rými til að veita ábendingar, eiga uppbyggilegt samtal við kennara um tímasetningar á verkefnum og prófum. Loks er jafnrétti lagt til grundvallar í öllu starfi, þar sem öllum eru tryggð jöfn tækifæri til að dafna og eflast sem fagaðilar í hvetjandi námsumhverfi.