VIFR3MR05 - Viðskiptafræði - Markaðsrannsóknir
Undanfari : Nemandi hafi lokið 5 ein. á 2. þrepi í viðskiptafræðigreinum
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Meginviðfangsefni áfangans er að kynna fyrir nemendum undirstöðuatriði markaðskannana, tilhögun og framkvæmd markaðsrannsókna. Farið er í gagnasöfnun, gagnagreiningu og úrvinnslu. Unnin er markaðsrannsókn fyrir fyrirtæki. Lögð er áhersla á vandaða skýrslugerð nemenda og að þeir kynni niðurstöður sínar viðeigandi aðilum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- markaðrannsóknum bæðii eigindlegum og megindlegum
- úrtaksaðferðum og helstu mælikvörðum sem notaðir eru í spurningalistum
- kostum og göllum helstu tegunda kannanna
- tilgangi og hugmyndafræði markaðskannanna
- þýðingu markaðskannanna fyrir fyritæki og samfélag
- samspili þarfa og markaðsrannsókna
- umhverfigreiningu á áhrifum mismunandi sviða umhverfsins á fyrirtæki
- samkeppnisgreiningu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- framkvæma markaðsrannsókn
- gera rannsóknaráætlun
- gera vandaðan spurningalista
- nota aðferðir og verkfæri markaðskannanna við lausn raunhæfra verkefna
- greina þarfi sem liggja að baki ýmsum vörum og/eða viðskiptum
- framkvæma einfalda umhverfisgreiningu
- framkvæma einfalda samkeppnisgreiningu
- framkvæma einfalda markaðshlutun út frá gefnum breytum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- útskýra mikilvægi rannsókna fyrir einstaklingi, fyrirtæki og samfélagi
- finna lausn á raunverulegum viðfangsefnum á sviði markaðfræðinnar
- taka þátt í umræðu um markaðsmál með skilningi og út frá faglegu sjónarmiðii
- lesa um málefni tengd markaðsmálum með skilningi
- beita upplýsingatækni við öflun upplýsinga og lausn verkefna
- nýta eigin reynslu af atvinnu og atvinnulífi við lausn verkefna
- notað ýmis verkfæri stjórnunar til að auðvelda skipulagningu og gera stjórnun árangursríka
- notað hugmyndir, aðferðir og verkfæri markaðfræðinnar til árangursríkrar markaðssetningar
Grunnþættir menntunar
Í þessum áfanga nýta nemendur sér læsi til að öðlast hæfni til að skynja og skilja umhverfi sitt og samfélag á gagnrýninn hátt og taka þátt í að móta það. Nemendur eru virkir þátttakendur í að skapa eigin merkingu og bregðast á persónulegan og skapandi hátt við því sem þeir lesa með hjálp þeirra miðla og tækni sem völ er á. Þeir nýta sér til gagns tölulegar upplýsingar og nota og miðlað upplýsingum á gagnrýninn og skapandi hátt. Í áfanganum birtist heilbrigði og velferð með því að kennari hugi eftir bestu getu að félagslegri vellíðan nemenda með því að tryggja góð samskipti og öryggi innan hópsins. Í áfanganum er lýðræði haft að leiðarljósi og borin er virðing fyrir manngildium hvers og eins og tekið er tillit til áhuga nemenda og ábyrgðar þeirra á eigin námi. Nemendur eru hvattir til að láta sínar skoðanir í ljós og tekur kennari tillit til og hlustar á. Unnið er að því að skapa tækifæri fyrir alla til að þroskast á eigin forsendum, rækta hæfileika sína og lifa ábyrgu lífi í frjálsu samfélagi í anda skilnings, friðar, umburðarlyndis, víðsýnis og jafnréttis. Sköpun er tekin fyrir en lögð eru fyrir verkefni sem byggja á gagnrýninni hugsun nemenda með aðferðum sem opna sífellt nýja möguleika, mótun viðhorfa, gildismats og hæfni. Nemendur hafa tækifæri til að hafa áhrif á skólastarfið s.s. með skipulag og námsmat.