VIFR3LF05 - Viðskiptafræði - Viðskiptalögfræði
Undanfari : Nemandi hafi lokið 5 ein. á 2. þrepi í viðskiptafræðigreinum
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur fái innsýn í réttarreglurnar (alþjóðlegar og íslenskar) og geri sér grein fyrir hvernig þær verka á samskipti manna og öðlist almenna fræðslu um íslenska lögskipan. Lögð er áhersla á frumkvæði, ábyrgð og færni í vinnu með gögn af ýmsum toga ásamt færni í samskiptum. Nemendur öðlist hæfni í meðferð heimilda og geti beitt tilteknum hugtökum varðandi lausnir á lögfræðilegum álitaefnum og geti rökstutt mál sitt í tengslum við þau. Lögð er rík áhersla á sjálfstæð og vönduð vinnubrögð og að námið nýtist sem góður undirbúningur fyrir frekara nám eða störf. Kennslan byggist einkum á verkefnavinnu nemenda og skilum á verkefnum og lögð er áhersla á að nemendur verði færir í rökhugsun.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- lögfræði sem fræðigrein
- nokkrum grundvallarhugtökum lögfræðinnar
- stjórnskipun Íslands
- mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar
- stjórnsýslulögunum
- réttarheimildum íslensks réttar
- dómstólum landsins
- réttindum og skyldum á vinnumarkaðnum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja notkun ákveðinna lykilhugtaka lögfræðinnar
- móta og setja fram texta, lögfræðilegs eðlis, á ýmsan máta og átta sig á læsileika hans
- leysa verkefni þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og kemur efninu á framfæri á skýran og skiljanlegan hátt
- sjá álitaefnin út frá ólíkum sjónarhornum
- vinna sjálfstætt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- setja fram skoðanir sínar, taka þátt í rökræðum og túlka ólík sjónarmið á fordómalausan en gagnrýninn og ábyrgan hátt
- efla með sér hæfni til sjálfstæðis í hugsun og vinnubrögðum sem og samstarfs
- geta tekið afstöðu til siðferðilegra álitamála
- vera virkur borgari í lýðræðisþjóðfélagi
- bera virðingu fyrir mannréttindum
- taka þátt í að móta samfélag sitt
- geta unnið með merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu
- nýta sér lögfræðilega þekkingu til lausnar í sérhæfðum, raunhæfum verkefnum
- beita gagnrýninni og skapandi hugsun við lausn verkefna
- fylgja röksemdafærslu í mæltu máli og texta
- vinna sjálfstætt að verkefnum og vera ábyrgur í heimildarleit
- undirbúa frekara nám og störf
Grunnþættir menntunar
Í þessum áfanga nýta nemendur sér læsi til að öðlast hæfni til að skynja og skilja umhverfi sitt og samfélag á gagnrýninn hátt og taka þátt í að móta það. Nemendur eru virkir þátttakendur í að skapa eigin merkingu og bregðast á persónulegan og skapandi hátt við því sem þeir lesa með hjálp þeirra miðla og tækni sem völ er á. Þeir nýta sér til gagns tölulegar upplýsingar og nota og miðlað upplýsingum á gagnrýninn og skapandi hátt. Í áfanganum birtist heilbrigði og velferð með því að kennari hugi eftir bestu getu að félagslegri vellíðan nemenda með því að tryggja góð samskipti og öryggi innan hópsins. Í áfanganum er lýðræði haft að leiðarljósi og borin er virðing fyrir manngildium hvers og eins og tekið er tillit til áhuga nemenda og ábyrgðar þeirra á eigin námi. Nemendur eru hvattir til að láta sínar skoðanir í ljós og tekur kennari tillit til og hlustar á. Unnið er að því að skapa tækifæri fyrir alla til að þroskast á eigin forsendum, rækta hæfileika sína og lifa ábyrgu lífi í frjálsu samfélagi í anda skilnings, friðar, umburðarlyndis, víðsýnis og jafnréttis. Sköpun er tekin fyrir en lögð eru fyrir verkefni sem byggja á gagnrýninni hugsun nemenda með aðferðum sem opna sífellt nýja möguleika, mótun viðhorfa, gildismats og hæfni. Nemendur hafa tækifæri til að hafa áhrif á skólastarfið s.s. með skipulag og námsmat.