VIFR3FK05 - Viðskiptafræði - Frumkvöðlafræði

Undanfari : Þekking, leikni og hæfni í bókfærslu, hagfræði, stærðfræði og fjármálum
Í boði : Alltaf

Lýsing

Áfanginn felst í því að nemendur mynda hópa og stofna sitt eigið fyrirtæki og reka. Vinna nemenda felst í því að halda utan um allt sem viðkemur fyrirtækinu en þau hafa nokkuð frjálsar hendur um viðfangsefni fyrirtækisins. Við rekstur fyrirtækjanna nota nemendur þá þekkingu, leikni og hæfni sem þeir hafa hlotið í öðrum áföngum sínum svo sem bókfærslu, fjármálum og hagfræði. Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð nemenda og ábyrgð þeirra á eigin námi.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • fyrirtækjarekstri
  • gerð viðskiptaáætlana
  • gerð einfaldra rekstrarreikninga
  • gerð einfaldra efnahagsreikninga
  • gerð einfaldra arðsemisútreikninga
  • helstu rekstrarformum fyrirtækja
  • lögmálum hagfræðinnar
  • hringrás efnahagslífsins

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • taka ákvarðanir
  • starfa saman í hóp að sameiginlegu langtíma markmiði
  • gera auglýsinga- og kynningaráætlanir
  • fjármagna eiginn rekstur

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • stofna og reka lítið fyrirtæki
  • þróa viðskiptahugmyndir
  • stýra verkefnum
  • fara með mannaforráð
  • vinna saman í hóp og meta vinnu hvers annars
  • gera viðskiptaáætlun
  • undirbúa og framkvæma krefjandi verkefni
  • fara í gegnum framleiðsluferli vöru eða þjónustu
  • markaðsetja og selja afurðir sínar

Grunnþættir menntunar

Í þessum áfanga nýta nemendur sér læsi til að öðlast hæfni til að skynja og skilja umhverfi sitt og samfélag á gagnrýninn hátt og taka þátt í að móta það. Nemendur eru virkir þátttakendur í að skapa eigin merkingu og bregðast á persónulegan og skapandi hátt við því sem þeir lesa með hjálp þeirra miðla og tækni sem völ er á. Þeir nýta sér til gagns tölulegar upplýsingar og nota og miðlað upplýsingum á gagnrýninn og skapandi hátt. Í áfanganum birtist heilbrigði og velferð með því að kennari hugi eftir bestu getu að félagslegri vellíðan nemenda með því að tryggja góð samskipti og öryggi innan hópsins. Í áfanganum er lýðræði haft að leiðarljósi og borin er virðing fyrir manngildium hvers og eins og tekið er tillit til áhuga nemenda og ábyrgðar þeirra á eigin námi. Nemendur eru hvattir til að láta sínar skoðanir í ljós og tekur kennari tillit til og hlustar á. Unnið er að því að skapa tækifæri fyrir alla til að þroskast á eigin forsendum, rækta hæfileika sína og lifa ábyrgu lífi í frjálsu samfélagi í anda skilnings, friðar, umburðarlyndis, víðsýnis og jafnréttis. Sköpun er tekin fyrir en lögð eru fyrir verkefni sem byggja á gagnrýninni hugsun nemenda með aðferðum sem opna sífellt nýja möguleika, mótun viðhorfa, gildismats og hæfni. Nemendur hafa tækifæri til að hafa áhrif á skólastarfið s.s. með skipulag og námsmat.