VIFR2MF05 - Viðskiptafræði - Markaðsfræði
Undanfari : Grunnáfangi á VH-braut
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Kynnt eru grunnhugtök og meginviðfangsefni markaðsfræðinnar. Áhersla er lögð á að auka skilning nemenda á gildi markaðsstarfs fyrir neytendur, fyrirtæki og samfélagið í heild. Leitast er við að nemendur tileinki sér markaðslega hugsun. Fjallað er um söluráðana og samval þeirra við markaðssetningu. Kynnt eru fyrir nemendum helstu atriði er varða umhverfi fyrirtækja, markaðshlutun, kauphegðun og mörkun og almenn vinnubrögð við markaðssetningu. Nemendum fá að kynnast vinnubrögðum í markaðssetningu með því að vinna að hagnýtum verkefnum. Kennsla fer fram með fyrirlestrum, umræðutímum og verkefnavinnu nemenda. Áhersla er lögð á raunhæf verkefni og hópavinnu og að nemendur sýni sjálfstæði í vinnubrögðum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- tilgangi og hugmyndafræði markaðsfræðinnar og þýðingu markaðsstarfs fyrir fyrirtæki og samfélag
- mismunandi afstöðu fyrirtækja til markaðarins
- hugsanlegum neikvæðum afleiðingum sem markaðssetning getur haft fyrir einstaklinga og samfélag
- söluráðunum; vara, verð, kynning og dreifing
- helstu þáttum í ytra umhverfi fyrirtækja
- helstu hugmyndum um kaupvenjur á neytendamarkaði og fyrirtækjamarkaði
- markhópagreiningu, markaðsmiðun og markaðshlutun
- helstu hugtökum og hugmyndum varðandi vöru, vöruþróun og líftíma vöru
- mörkun og þróun vörumerkja
- helstu atriðum varðandi markaðssetningu þjónustu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita grunnhugtökum markaðsfræðinnar við verkefnavinnu
- ræða hugmyndir markaðsfræðinnar
- vinna saman í hóp
- koma þekkingu sinni varðandi markaðstengd viðfangsefni á framfæri
- geta leyst raunhæf verkefni (case) í markaðsfræði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita hugtökum markaðsfræðinnar í starfi
- meta siðfræðileg álitamál sem varða markaðssetningu
- heimfæra hugmyndir markaðsfræðinnar á eigið líf
- nýta sér hæfni sína til frekara náms í markaðsfræði
- nýta hæfni sína til starfa við einföld markaðsmál
- gera makhópagreiningu fyrir einstakar vörur
- miðla vitneskju sinni um markaðsmál til annarra
Grunnþættir menntunar
Í áfanganum er lögð áhersla á umhverfi, ábyrgð, virðingu og lýðræðislega vinnubrögð þar sem þeim takmörkunum sem viskerfi jarðar setur manninum, skynsamlega nýtingu auðlinda og sanngjarni skiptingu þeirra. Þannig er mikilvægt að efnahagsvöxtur byggi hvorki á, né leiði til, óhóflegs ágangs á náttúruna. Ungmenni takast á í námi sínu á við margvísleg álitamál og ágreiningsefni til að auka skilning á eigin vistspori, vistspori samfélaga og þjóða sem stuðlar að sjálfbærri þróun og hófsemi. Nemendur eru virkir þátttakendur í að skapa eigin merkingu og bregðast á persónulegan og skapandi hátt við því sem þeir lesa með hjálp þeirra miðla og tækni sem völ er á. Þeir nýta sér til gagns tölulegar upplýsingar og nota og miðlað upplýsingum á gagnrýninn og skapandi hátt. Í áfanganum birtist heilbrigði og velferð með því að kennari hugi eftir bestu getu að félagslegri vellíðan nemenda með því að tryggja góð samskipti og öryggi innan hópsins. Í áfanganum er lýðræði haft að leiðarljósi og borin er virðing fyrir manngildium hvers og eins og tekið er tillit til áhuga nemenda og ábyrgðar þeirra á eigin námi. Nemendur eru hvattir til að láta sínar skoðanir í ljós og tekur kennari tillit til og hlustar á. Unnið er að því að skapa tækifæri fyrir alla til að þroskast á eigin forsendum, rækta hæfileika sína og lifa ábyrgu lífi í frjálsu samfélagi í anda skilnings, friðar, umburðarlyndis, víðsýnis og jafnréttis. Sköpun er tekin fyrir en lögð eru fyrir verkefni sem byggja á gagnrýninni hugsun nemenda með aðferðum sem opna sífellt nýja möguleika, mótun viðhorfa, gildismats og hæfni. Nemendur hafa tækifæri til að hafa áhrif á skólastarfið s.s. með skipulag og námsmat.