VGRT2GC04 - Verktækni rafiðna 3
Undanfari : VGRT2GB03
Í boði
: Haust
Lýsing
Nemendur læra að beita rásahermiforritum til að teikna og prófa einfaldar rafeindarásir. Nemendur gera jafnframt allar mælingar í slíkum forritum, smíða rás, prentplötu og setja rásirnar saman. Síðan staðfesta þeir virkni rásarinnar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- virkni rásahermiforrita
- virkni helstu íhluta
- hvernig kopar prentrása er
- forritum til að teikna prentrásir
- forritum sem teikna rafeindarásir
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna með og prófa rásir í rásahermum
- snúa skematískum teikningum yfir á prent
- mæla og prófa rásir bæði í rásahermi og raunrás
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- teikna rafeindarás í rásahermi
- láta rásina virka í rásahermi
- mæla spennur, strauma og viðnám í rásahermi
- hanna prent út frá rásateikningu
- smíða rás með etching aðferð
- prófa og staðfesta virkni í raunrás
Grunnþættir menntunar
Í þessum áfanga er unnið markvisst að því að efla faglæsi nemenda á táknkerfi, teikningar og tæknilegar upplýsingar. Lögð er rík áhersla á sköpun og lausnamiðaða hugsun þar sem nemendur hagnýta þekkingu sína í raunhæfum verkefnum. Sjálfbærni og fagleg vinnubrögð eru fléttuð inn í námið með áherslu á skynsamlega nýtingu efnis og varanlegar lausnir. Öryggi er ætíð í forgrunni til að tryggja heilbrigði og velferð í vinnuumhverfinu. Lýðræði og mannréttindi birtast í því að ríkt samráð er haft við nemendur; þeim er tryggt rými til að veita ábendingar, eiga uppbyggilegt samtal við kennara um tímasetningar á verkefnum og prófum. Loks er jafnrétti lagt til grundvallar í öllu starfi, þar sem öllum eru tryggð jöfn tækifæri til að dafna og eflast sem fagaðilar í hvetjandi námsumhverfi.