TNTÆ3GC05 - Tölvu- og nettækni 3

Undanfari : TNTÆ2GB05
Í boði : Haust

Lýsing

Í áfanganum kynnast nemendur tölvunetkerfum, mismunandi gerð þeirra, margvíslegri uppbyggingu og þeim búnaði sem þau samanstanda af. Nemendur kynnast virkni tölvuneta með því að tileinka sér netkerfistaðlana OSI og TCP/IP. Höfuðáhersla áfangans er að kenna nemendum grunninn í vélbúnaði tölvunetkerfa, stillingar á búnaði og tengingu milli íhluta þeirra. Nemendur læra einnig að hanna meðalstór netkerfi og skipta stórum kerfum upp í minni. Mælt er með að gagnvirkt rafrænt námsefni frá Cisco, sé notað. Námsefnið heitir CCNA1 og er liður í námsefni sem nær til alþjóðlegu starfsréttindagráðunnar CCNA.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • íhlutum tölvunetkerfa, skilji tilgang þeirra og virkni
  • OSI og TCP/IP líkönum
  • IP vistföngum
  • hugtökum og skammstöfunum sem notuð eru í tölvunetkerfum
  • nethögun (topology) tölvulagna


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • þekkja notkunarsvið mismunandi tölvustrengja
  • meta hvaða nethögun hentar best við hvert tilfelli
  • útbúa tölvustrengi og gæðamæla þá
  • rekja bilanir í netsamböndum


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • hanna með vistföngum meðalstór tölvunetkerfi
  • velja réttan búnað við uppsetningu á tölvunetkerfi
  • setja upp og stilla meðalstórt tölvunetkerfi
  • stilla beina (routers) með grunnstillingum
  • hafa yfir að ráða nægum orðaforða um efnið til þess
  • finna bilanir í tölvunetkerfi
  • hafa yfir að ráða nægum orðaforða um efnið til þess að geta rætt um kerfin við aðra tæknimenn
  • nota áunna tækniensku sér til framdráttar og frekara náms í nýjustu tækni á þessum sviðum

 

Grunnþættir menntunar

Í þessum áfanga er unnið markvisst að því að efla faglæsi nemenda á táknkerfi, teikningar og tæknilegar upplýsingar. Lögð er rík áhersla á sköpun og lausnamiðaða hugsun þar sem nemendur hagnýta þekkingu sína í raunhæfum verkefnum. Sjálfbærni og fagleg vinnubrögð eru fléttuð inn í námið með áherslu á skynsamlega nýtingu efnis og varanlegar lausnir. Öryggi er ætíð í forgrunni til að tryggja heilbrigði og velferð í vinnuumhverfinu. Lýðræði og mannréttindi birtast í því að ríkt samráð er haft við nemendur; þeim er tryggt rými til að veita ábendingar, eiga uppbyggilegt samtal við kennara um tímasetningar á verkefnum og prófum. Loks er jafnrétti lagt til grundvallar í öllu starfi, þar sem öllum eru tryggð jöfn tækifæri til að dafna og eflast sem fagaðilar í hvetjandi námsumhverfi.