TNTÆ2GB05 - Tölvu- og nettækni 2
Undanfari : TNTÆ1GA03
Í boði
: Haust
Lýsing
Í áfanganum er lögð áhersla á nemendur kynnist stafrænni tækni og og að þeir nái tökum á grundvallaratriðum hennar. Áfanginn er beint framhald af áfanganum TNTÆ1A3. Nemendur læra að nota sannleikstöflur og bólska algebru til þess að skilgreina virkni rökrása. Þeir læra hvernig má einfalda þær með hjálp Karnaugh-korta. Nemendur kynnast samrásum og virkni þeirra. Smárásir sem skoðaðar verða eru m.a. samlagningarrás, samanburðarrás, kóðabreytir, línuveljari, teljari og hliðrunarsérminni. Virkni lása og vippna er krufin svo og samstilltir og ósamstilltir teljarar. Lögð skal áhersla á notkun hermiforrita við prófun rásanna. Einnig er lögð áhersla á að nemendur geti hannað eina rás fyrir prentplötu, útbúið prentplötu fyrir þá rás, komið fyrir íhlutum og prófað. Þá er lögð áhersla á að nemendur fái innsýn í forritanlega örgjörva og hvernig hægt er að forrita þá og nota t.d. í skynjararásir ýmiskonar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- notkun bólskrar algebru og sannleikstaflna við skilgreiningu á virkni rökrása
- notkun Karnaugh-korta til einföldunar á rökrásum
- virkni helstu samrása
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita bólskri algebru til einföldunar á rökrásum
- nota Karnaugh-kort sömuleiðis til einföldunar á rökrásum
- tengja samrás í hermiforriti og prófa
- hanna og smíða litla prentrás fyrir samrás
- forrita litla örgjörva
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- öðlast stafrænt læsi sem felst í að skilja virkni helstu rökrása
- beita mælitækjum við að prófa rökrásir
- beita tölvuhermiforritum til prófunar á rökrásum
- hanna prentrás fyrir rökrás
- lóða saman íhluti á prentrás
- forrita örgjörva eftir ákveðinni forskrift
Grunnþættir menntunar
Í þessum áfanga er unnið markvisst að því að efla faglæsi nemenda á táknkerfi, teikningar og tæknilegar upplýsingar. Lögð er rík áhersla á sköpun og lausnamiðaða hugsun þar sem nemendur hagnýta þekkingu sína í raunhæfum verkefnum. Sjálfbærni og fagleg vinnubrögð eru fléttuð inn í námið með áherslu á skynsamlega nýtingu efnis og varanlegar lausnir. Öryggi er ætíð í forgrunni til að tryggja heilbrigði og velferð í vinnuumhverfinu. Lýðræði og mannréttindi birtast í því að ríkt samráð er haft við nemendur; þeim er tryggt rými til að veita ábendingar, eiga uppbyggilegt samtal við kennara um tímasetningar á verkefnum og prófum. Loks er jafnrétti lagt til grundvallar í öllu starfi, þar sem öllum eru tryggð jöfn tækifæri til að dafna og eflast sem fagaðilar í hvetjandi námsumhverfi.