STÆR4SG05 - Stærðfræði - Stærðfræðigreining

Undanfari : STÆR3HI05
Í boði : Alltaf

Lýsing

Fjallað er um rauntölur, fullkomleika þeirra , andhverf hornaföll og hagnýtingu diffrunar. Farið í ýmis grundvallarhugtök eins og markgildi og samfeldni falla. Ýmsum aðferðum beitt við að kanna samleitni óendanlegra runa og raða

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • raunfallakerfinu og raunföllum
  • markgildum falla
  • notkun diffurreiknings
  • undirstöðueiginleikum samfelldra og diffranlegra falla
  • samleitni óendanlegra runa af ýmsum gerðum

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • finna markgildi falla
  • nota diffurreikning í hagnýtum tilgangi
  • beita reglum sem byggja á undirstöðueiginleikum samfelldra falla beita mismunandi aðferðum til að kanna samleitni óendanlegra runa og raða
  • setja niðurstöður sínar fram á skýran og skilmerkilegan hátt

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta skráð hugsanir sínar skýrt og á gagnrýninn hátt, skipst á skoðunum við aðra um þær og útskýrt þær á viðeigandi hátt
  • fylgja stærðfræðilegri röksemdafærslu og geta byggt upp einfaldar sannanir á eigin spýtur
  • takast af miklu öryggi á við stærðfræðileg verkefni
  • hagnýtt sér stærðfræðilega þekkingu sína til ákvarðanatöku í sérhæfðum verkefnum
  • takast á við stærðfræðileg verkefni þar sem að nota þarf ólíkar aðferðir samtímis eða hverja á eftir annarri

Grunnfærni menntunar

Í stærðfræðikennslu fléttast grunnþættirnir saman á margvíslegan hátt:

  • Læsi er hornsteinn námsins. Nemendur þjálfast í að lesa úr tölulegum gögnum, túlka niðurstöður og miðla lausnum á skýran og skipulegan hátt, en þetta tölulæsi er grunnfærni sem allir þurfa í nútímasamfélagi.
  • Sköpun á sér stað þegar nemendur glíma við opin verkefni, þurfa að velja á milli aðferða og leita að eigin lausnarferlum. Þar er gert ráð fyrir að mistök séu hluti af námsferlinu og nemendur hvattir til þess að nota gagnrýna hugsun.
  • Sjálfbærni kemur fram þegar stærðfræðilegri hugsun er beitt á raunveruleg viðfangsefni sem gefur nemendum tækifæri til að skilja hvernig stærðfræðin tengist ábyrgð þeirra gagnvart samfélagi og umhverfi.
  • Jafnrétti endurspeglast í kennsluháttum sem tryggja að allir nemendur, óháð bakgrunni eða reynslu, fái tækifæri til að njóta styrkleika sinna og uppgötva eigin samband við námsgreinina.