STÆR1AR05 - Stærðfræði - Algebra og rúmmál
Undanfari : Áfanginn er ætlaður nemendum sem koma upp úr grunnskóla með hæfnieinkunn C+
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Meginviðfangsefni áfangans eru: Grunnhugtök í mengjafræði, upprifjun á talnameðferð, röð aðgerða, frumþáttun talna og almennum brotum. Undirstöðuatriði í algebru, liðun og þáttun og einföldun algebrubrota. Jöfnureikningur og lausn jöfnuhneppa. Prósentu- og vaxtareikningur. Rúmfræðireikningur, flatarmál, rúmmál, Pýþagórasarreglan, einslögun þríhyrninga og horn við hring. Hnitakerfið og jafna beinnar línu
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- talnameðferð og frumtölum
- almennum brotum og tugabrotum
- heiltöluveldum
- prósentu-, hlutfalla- og vaxtareikning
- undirstöðuatriðum í algebru, fyrsta stigs jöfnum og lausn jöfnuhneppa
- flatarmáli og rúmmáli algengra forma
- jöfnu beinnar línu og hnitarúmfræði í tvívíðum fleti
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita helstu aðgerðum á heilar tölur og brot og nota víxlreglu, tengireglu og dreifireglu í talnareikningi
- beita veldareglunum og reglum sem gilda um röð aðgerða
- reikna prósentur og vexti
- beita undirstöðureglum algebru, s.s. liðun og þáttun, við lausn á jöfnum
- vinna með jöfnu beinnar línu, finna hallatölu og skurðpunkta við ása hnitakerfisins
- reikna flatarmál og rúmmál algengra forma
- reikna hornaföll í rétthyrndum þríhyrningum
- vinna með Pýþagórasarreglu og reglur um einslögun þríhyrninga
- beita reglum um horn við hring
- tjá sig munnlega og skriflega á stærðfræðilegan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
- fylgja og skilja röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
- beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s.s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta
- vinna til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
- takast á við stærðfræðileg verkefni með opnum og jákvæðum huga
Grunnfærni menntunar
Í stærðfræðikennslu fléttast grunnþættirnir saman á margvíslegan hátt:
- Læsi er hornsteinn námsins. Nemendur þjálfast í að lesa úr tölulegum gögnum, túlka niðurstöður og miðla lausnum á skýran og skipulegan hátt, en þetta tölulæsi er grunnfærni sem allir þurfa í nútímasamfélagi.
- Sköpun á sér stað þegar nemendur glíma við opin verkefni, þurfa að velja á milli aðferða og leita að eigin lausnarferlum. Þar er gert ráð fyrir að mistök séu hluti af námsferlinu og nemendur hvattir til þess að nota gagnrýna hugsun.
- Sjálfbærni kemur fram þegar stærðfræðilegri hugsun er beitt á raunveruleg viðfangsefni sem gefur nemendum tækifæri til að skilja hvernig stærðfræðin tengist ábyrgð þeirra gagnvart samfélagi og umhverfi.
- Jafnrétti endurspeglast í kennsluháttum sem tryggja að allir nemendur, óháð bakgrunni eða reynslu, fái tækifæri til að njóta styrkleika sinna og uppgötva eigin samband við námsgreinina.