Nemendur eru þjálfaðir í hlustun, lestri, tali og ritun. Áhersla er lögð á notkun tungumálsins, bæði munnlega og skriflega, í raunaðstæðum sem mætir hæfniviðmiðum þrepsins. Unnið er með efni af ýmsu tagi og á mismunandi þyngdarstigi, s.s. texta og hlustunar- og myndefni. Ýmis þemaverkefni eru unnin út frá raunefni sem tengjast listum, sögu, menningu og þjóðfélagi samtímans á viðkomandi málsvæðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja aðalatriði í daglegu máli, svo sem samræður og fjölmiðlaefni
- tileinka sér efni ritaðra texta af ýmsu tagi og hagnýta á mismunandi hátt
- lesa og túlka skáldskap af hæfilegu þyngdarstigi og tjá sig munnlega og skriflega um efni hans
- ræða við aðra af nokkru öryggi um efni sem hann þekkir vel til
- taka þátt í einföldum skoðanaskiptum og færa rök fyrir máli sínu
- skrifa læsilegan texta um sérvalið efni
- nýta á markvissan hátt upplýsingatækni og ýmis hjálpargögn við textasmíði
Grunnþættir menntunar
Læsi: Nemendur þjálfast í að skilja texta og myndmál í spænskumælandi efni. Nemendur fá innsýn í hvernig spænska sem tungumál mótar menningarskilning spænskumælandi samfélaga. Nemendur fá skilning á mismunandi beitingu tungumálsins í ólíkum menningarheimum spænskumælandi landa.
Sjálfbærni: Nemendur kynnast leiðum sem eru notaðar í spænskumælandi löndum til að takast á við vandamál hvað varðar sjálfbærni. Nemendur kynnast nýjum áskorunum hvað varðar sjálfbærni í tengslamyndun milli kynslóða í ýmsum spænskumælandi löndum nútímans.
Jafnrétti: Skoðuð er staða jafnréttis í spænskumælandi löndum, svo sem hvað varðar kynþætti, menningu og tungumál, sbr. menningu og bakgrunn frumbyggja í Suður-Ameríku.
Lýðræði og mannréttindi: Nemendur kynnast sögu nokkurra spænskumælandi landa og þróun þeirra hvað varðar lýðræði og mannréttindi.
Sköpun: Nemendur takast á við menningarheima spænskumælandi landa á fjölbreyttan hátt, svo sem í gegnum tónlist, myndbönd og texta.