SMÍÐ2VB06(BV) - Málmsmíðar 2 - Handavinna, framhald

Undanfari : SMÍÐ1VA06AV
Í boði : Haust

Lýsing

Í áfanganum er lögð áhersla á að nemandinn hljóti aukna þjálfun í smíði eftir teikningum. Áhersla er lögð á notkun verkstæðisvéla s.s.rennibekkja, fræsivéla, borvéla, niðurefnunarvéla o.fl., meðferð og umhirðu þeirra. Nemandinn lærir að slípa, bora og nota spónskurðarverkfæri, sem hann þarf að nota við smíðina, sem og að nota handbækur og töflur. Áhersla er á að nemandinn öðlist nægilega færni til að leysa tiltölulega einföld verkefni í rennibekk og fræsivél, innan 0,05 mm málvika. Samhliða kennslunni fer fram fræðsla um slysahættu og öryggisþætti á vinnustað, þar sem rík áhersla er lögð á umgengni við vélar og verkfæri sem unnið er með.

Þeir öðlast ennfremur þekkingu á efnisfræði málma og færni til að velja stál og meðhöndla það á réttan hátt. Þeir læra að notfæra sér staðla og flokka til að finna réttan málm eða málmblöndu til nota við tæknileg úrlausnarefni hverju sinni. Nemendur þekki grunnatriði við formun smíðamálma og mótun, varmameðhöndlun á stáli og málmþreytu.

Nemendur skulu þekkja til helstu plastefna sem notuð eru í málmiðnaði.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mismunandi skrúfgengjum og vinnuútfærslu þeirra
  • helstu hlutum rennibekkja, fræsivéla og borvéla og heiti þeirra
  • vinnsluháttum og fylgibúnaði rennibekkja, fræsivéla og borvéla
  • handbókum og töflum og notkunarmöguleikum þeirra
  • aðferðum við járnsteypu, flokkun steypujárns og eiginleikum þess.
  • almennum öryggisreglum á vinnusvæði
  • virkni flóknari véla til smíða
  • kostum og göllum áls og ryðfrís stáls.
  • málmþreytu og mismunandi eiginleikum gagnvart henni


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • renna og fræsa verkefni samkvæmt teikningum
  • nota algengustu mæli- og uppmerkitæki
  • nota áhöld sem hæfa efninu sem unnið er með draga bor og rennistál
  • slípa bora og spónskurðarverkfæri
  • bora og snitta í málma af mismunandi gerðum
  • lesa flóknari teikningar en áður


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • áætla magn og efnistaka það efni sem gefið er upp samkvæmt teikningum
  • útbúa verkáætlun
  • leysa einföld verkefni í rennibekk og fræsivél, innan 0,1 mm málvika
  • nýta handbækur og töflur við vinnslu verkefna
  • velja áhöld sem hæfa efninu sem unnið er með
  • finna út snúnings- og færsluhraða spóntökuvéla
  • skipuleggja vinnu sína á sjálfstæðan hátt