SMÍÐ1VA06(AV) - Málmsmíði 1 - Handavinna, grunnur
Undanfari : ?Óákveðið
Í boði
: Haust
Lýsing
Nemandinn fær almenna kynningu á umhverfi á málmsmíðaverkstæði ásamt helstu umgengnis- og öryggisreglum. Þá er farið yfir meðferð og notkun helstu mælitækja, handverkfæra og einföldustu tækja til smíða sem notuð eru í málmiðnaði. Unnið er að verkefnum þar sem nemandinn les vinnuteikningar, fær þjálfun í að mæla, merkja, saga, sverfa, bora, snitta, slípa, o.s.frv. Jafnframt lærir nemandinn að nota handbækur og töflur. Lögð er áhersla á að nemandinn kunni skil á vinnsluhætti rennibekkja, borvéla og fræsivéla og læri umhirðu véla og verkfæra sem hann vinnur með. Nemandinn öðlast nægilega færni til að leysa einföld verkefni í rennibekk innan 0,1 mm málvika. Farið er yfir grunnþætti í þunnplötusmíði, helstu verkfæri og vélar, þannig að nemandinn geti smíðað einfalda hluti. Samhliða kennslunni fer fram fræðsla um slysahættu og öryggisþætti á vinnustað, þar sem rík áhersla er lögð á umgengni við vélar og verkfæri sem unnið er með.
Farið yfir eiginleika algengustu smíðamálma, kosti þeirra og galla.
Áfanginn er að hluta til bóklegur.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á eftirfarandi:
- meðferð og umhirðu verkfæra
- notkun helstu mælitækja
- almennum öryggis- og umgengnisreglum á vinnusvæði
- mikilvægi réttar förgunar spilliefna
- mikilvægi loftgæða
- réttri notkun hlífðarfatnaðar og persónuhlífa
- gerðum og eiginleikum helstu smíðamálma
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- smíða hluti úr mismunandi málmum
- vinna eftir vinnuteikningum, smíði sem stenst öll mál
- beita mælitækjum og uppmerkitækjum
- beita réttri yfirborðsmeðhöndlun miðað við efnisgerð og notkun
- velja sér skeráhöld til verka
- draga bor og rennistál ef á þarf að halda
- bora í málma af mismunandi gerðum og þykktum
- velja efni sem hentar smíði hverju sinni
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- efna niður og málsetja einfalda hluti úr málmi
- ákveða rétta vinnsluaðferð
- velja réttar þjalir fyrir efni og áferð
- velja bora eftir efnum sem bora skal og snúningshraða eftir borstærð og efnum
- velja rétta borstærð í töflu eftir stærð snitttappa sem nota á
- gera skrúfgang með snittverkfærum og nota snitttöflu
- lesa eiginleika málmtegunda úr efnisstöðlum.
- velja málmtegundir eftir stöðlum og ákveðið hvaða efni hentar best fyrir mismunandi aðstæður og notkun.
- segja til um herslumöguleika og herslueiginleika málma