RRVV2RB03 - Rafvélar 2

Undanfari : RRVV2RA03
Í boði : Haust

Lýsing

Í þessum áfanga er fjallað um jafnstraumsvélar, þrífasa riðstraums -mótora, -rafala og -spennubreyta. Tengdar eru ýmsar rafvélar, gerðar prófanir og mælingar á þeim til skýrslugerðar. Fjallað er um merkiskilti og upplýsingarit fyrir mismunandi rafvélar og notkun þeirra.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • virkni jafnstraums -mótora og -rafala, þrífasa riðstraums -rafala, -mótora og -spenna
  • tengingum á þessum búnaði
  • mælingum á þessum búnaði


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • tengja mismunandi þrífasa riðstraums rafvélar og jafnstraums rafvélar
  • framkvæma mælingar á þeim


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skrifa skýrslur um mismunandi þrífasa riðstraums- og jafnstraums- rafvélar
  • leiðbeina um val á mismunandi þrífasa riðstraums og jafnstraums- rafvélum við mismunandi aðstæður

 

Grunnþættir menntunar

Í þessum áfanga er unnið markvisst að því að efla faglæsi nemenda á táknkerfi, teikningar og tæknilegar upplýsingar. Lögð er rík áhersla á sköpun og lausnamiðaða hugsun þar sem nemendur hagnýta þekkingu sína í raunhæfum verkefnum. Sjálfbærni og fagleg vinnubrögð eru fléttuð inn í námið með áherslu á skynsamlega nýtingu efnis og varanlegar lausnir. Öryggi er ætíð í forgrunni til að tryggja heilbrigði og velferð í vinnuumhverfinu. Lýðræði og mannréttindi birtast í því að ríkt samráð er haft við nemendur; þeim er tryggt rými til að veita ábendingar, eiga uppbyggilegt samtal við kennara um tímasetningar á verkefnum og prófum. Loks er jafnrétti lagt til grundvallar í öllu starfi, þar sem öllum eru tryggð jöfn tækifæri til að dafna og eflast sem fagaðilar í hvetjandi námsumhverfi.