LEIF3GR05 - Leikjaforritun 4 - Sýndarveruleiki
							
																																
	
	
													
											
							Undanfari : LEIF2FR05
						
																
							Í boði
							: Haust
						
														 
					
		
					
				Lýsing
				Í áfanganum vinna nemendur með færni í hönnun og þróun sýndarveruleika leikja. Sérstök áhersla verður á það hvaða aðferðir virki vel til þess að gera sýndarveruleikaupplifun sem raunverulegasta. Í áfanganum er unnið með atriðastýringu (control method) og navigation í VR. Nemendur vinna með möguleika og takmarkanir sem VR app er háð í samanburði við hefðbundin real time applications.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- verkfæri verkefnastjórnunar í þróunarsjónarmiði (s.s. Agile Development Process)
- skipulag, útfærslu og eftirfylgni verkefnis
- skapandi lausnaleit
- sérþekkingu um mismunandi verkfæri til tölvuleikjagerðar
- möguleikum og takmörkunum með notkun VR/AR
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nota viðurkennd verkfæri til verkefnastjórnunar
- útfærslu markhópsgreiningar og aðlögunarferla
- nota mismunandi verkfæri til tölvuleikjagerðar
- notkun og þróun smáforrita (applications) fyrir VR/AR
- forritun í mismunandi leikjavélum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- bera kennsl á og velja besta formið út frá fyrirmælum
- vinna sjálfstætt að sköpun flókinna tví- og þrívíddarleikja
- þróa tölvuleiki og sýndarveruleika til notkunar í VR