ÍÞRÓ1BL01 - Íþróttir - Blak
							
																																
	
	
													
											
							Undanfari : Enginn
						
																
							Í boði
							: Alltaf
						
														 
					
		
					
				Lýsing
				Áfanginn er verklegur. Blak er leikið sér til ánægju og heilsuræktar. Helstu reglur íþróttarinnar kynntar. Nemendur eru hvattir til að rækta líkama sinn sér til heilsubótar og ánægju
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu leikreglum og grunnatriðum greinarinnar
- mikilvægi hreyfingar
- líkamlegri, andlegri og félagslegri heilsu
- leiðum til að nýta líkams- og heilsurækt við daglegar athafnir
- gildi samvinnu,umburðarlyndis og virðingar í leik, keppni og starfi
- forvarnargildi líkamsræktar
 
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita grunntækni í greininni
- skilja mikilvægi upphitunnar
- leika blak sér til heilsubótar og ánægju
- vinna með öðrum að lausnum verkefna
- taka tillit til annarra og hvetja þá
 
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- stunda hreyfingu án mikils tilkostnaðar
- sýna öðrum virðingu við leik, keppni, nám og störf
- vinna að bættri heilsu í samvinnu við aðra
- styrkja jákvæða sjálfsmynd með þátttöku í greininni
- gera hreyfingu að lífsstíl