ÍSAN3BÓ05 - Íslenska sem annað mál - Fornbókmenntir

Í boði : Alltaf

Lýsing

Í áfanganum verður lögð áhersla á að nemendur kynnist bókmenntum frá miðöldum og fái þannig innsýn í menningararf þjóðarinnar. Nemendur lesa eina samtíðarsögu sem tengist atburðum Sturlungaaldar og Snorra-Eddu, báðar í styttri einfaldaðri útgáfu.

Verkefni áfangans verða bæði skrifleg og munnleg og eiga bæði að stuðla að aukinni vitund um íslenska setningafræði og stafsetningu.