ÍSAN2AB05 - Íslenska sem annað mál - Málnotkun

Í boði : Alltaf

Lýsing

Áhersla er lögð á þjálfun í málnotkun við ritun, framsögn og lestur ásamt því að nemendur kynnist bókmenntum s.s. þjóðsögum og/eða smásögum. Nemendur lesa þjóðsögu að eigin vali á sínu móðurmáli og segja frá henni á íslensku. Fjallað er um íslenska dægurmenningu, land og þjóð.

Markmiðið er að nemendur þjálfi sjálfstæði í vinnubrögðum, notkun orðabóka, bætta námstækni og auki orðaforða sinn, framburðar- og lestrarfærni. Áhersla lögð á jákvæð samskipti innan hópsins, samvinnu og vinnusemi.