IÐTE3VB05(CV) - Iðnteikning 3 - Tölvuteikning, framhald

Undanfari : IÐTE2VB05(BV)
Í boði : Haust

Lýsing

Nemendur öðlast frekari færni í tölvuteikningu með áherslu á gerð fagteikninga samkvæmt gildandi stöðlum og reglum um véla- og málmsmíðateikningar. Þeir fá þjálfun í fríhendisteikningu með áherslu á rissmyndir. Nemendur verða færir um að lesa og vinna eftir teikningum á vinnustað. Þeir geta teiknað og útfært smíða- og lagnateikningar fyrir einstök verkefni.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • uppbyggingu rissmynda og gildi þess að vinna rissmyndir til skýringa á hugmyndum
  • stöðlum sem gilda um teikningagerð, táknum og merkingum á teikningum og mælikvörðum sem algengir eru í smíða- og lagnateikningum
  • strikagerðum og strikaþykktum á teikningum og merkingum þeirra
  • reglum um málsetningar teikninga og notkun teiknileturs
  • framsetningu sniða og varpana
  • skástrikunum
  • grundvallarreglum við gerð útflatningsteikninga og ísómetrískra teikninga og kerfismynda
  • gerð samsettra teikninga og íhlutalista þeirra


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • rissa upp einfaldar þrívíðar myndir af smíðahlutum
  • skýra með teikningum hugmyndir um útlit og tilgang einfaldra smíðahluta
  • staðsetja teikningu, ákvarða hæfilegan mælikvarða og aðra uppsetningu
  • setja inn nauðsynleg snið og málsetja teikningu svo hægt sé að smíða hlutinn
  • teikna stöðluð form fyrir staðlaða íhluti samkvæmt upplýsingum framleiðenda
  • teikna einstaka vélahluta og samsettar myndir samkvæmt fyrirmælum
  • teikna hluti sjálfstætt samkvæmt skriflegum leiðbeiningum, velja íhluti og málsetja
  • gera efnis- og tækjalista eftir teikningum


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • vinna sjálfstætt
  • beita þeim vinnuaðferðum sem krafist er við gerð vélateikninga og þjálfaðar hafa verið í áfanganum