HAGF3ÞF05 - Hagfræði - Þjóðhagfræði

Undanfari : HAGF2ÞF05
Í boði : Alltaf

Lýsing

Áfanginn miðar að því að auka skilning nemandans á helstu kenningum hagfræðinnar og starfsemi þjóðarbúsins. Samband sparnaðar og fjárfestinga verður skoðað, hagvaxtarfræði kynnt og helstu kenningar er varða þróun hagkerfa. Þá verður reynt að útskýra orsök og afleiðingar efnahagshruna á hagkerfi almennt en sérstaklega verður fjármálkreppan 2008 skoðuð. Áhersla er lögð á fræðilegt inntak og hagnýtt gildi námsefnisins með því að tengja sem mest við þau efnahagsmál sem eru efst á baugi á Íslandi sem og erlendis. Áhersla er lögð á almennar þjóðhagsstærðir og að nemendur öðlist þá hæfni að leita sér upplýsinga um hagfræðilega tengd málefni. Kennslan er byggð á fyrirlestrum, verkefnavinnu og umræðutímum. Lesefni er að mestu á ensku og er lögð áhersla á að nemandinn geti skilið og tileinkað sér hugtök og efnisatriði á ensku sem og íslensku.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hugtökum hagfræðinnar og helstu kenningum
  • íslensku efnahagslífi
  • viðfangsefnum hagstjórnar og efnahagsstefnu stjórnvalda
  • hvernig hagvöxtur myndast og hvaða áhrifaþættir ráða honum
  • samspili sparnaðar og fjárfestinga í hagkerfum
  • hvernig atvinnuleysi myndast og hvaða leiðir eru færar til að sporna við því
  • hlutverki peninga í hagkerfinu
  • peningastefnu þjóða og tilgangi þeirra
  • mismunandi gjaldmiðlum
  • alþjóðaviðskiptum, hvernig þau fara fram og hvers vegna stjórnvöld þurfa stundum að hafa afskipti af þeim
  • efnahagshruni þjóða

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa í og greina hagvaxtarspár
  • skilja hlutverk fjármálamarkaða og þá gjörninga sem fram fara þar
  • reikna vexti
  • útskýra tilurð verðbólgu og reikniforsendur hennar
  • reikna gengi gjaldmiðla og myntkarfa
  • ræða orsakir og afleiðingar efnahagshruna

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • túlka umsvif hins opinbera í efnahagslífinu
  • nota hagfræðileg líkön og tungutak til að útskýra og greina raunveruleg vandamál
  • tjá sig um hagfræðileg málefni, bæði munnlega og skriflega og móta sjálfstæðar skoðanir sem m.a. eru byggðar á þeim fræðilega grunni sem lagður er til í náminu
  • lesa texta sem fjalla um hagfræðileg málefni á erlendu tungumáli
  • nota upplýsingatækni til heimildaöflunar í náminu
  • taka ábyrgð á eigin námi

Grunnþættir menntunar

Í þessum áfanga nýta nemendur sér læsi til að öðlast hæfni til að skynja og skilja umhverfi sitt og samfélag á gagnrýninn hátt og taka þátt í að móta það. Nemendur eru virkir þátttakendur í að skapa eigin merkingu og bregðast á persónulegan og skapandi hátt við því sem þeir lesa með hjálp þeirra miðla og tækni sem völ er á. Þeir nýta sér til gagns tölulegar upplýsingar og nota og miðlað upplýsingum á gagnrýninn og skapandi hátt. Í áfanganum birtist heilbrigði og velferð með því að kennari hugi eftir bestu getu að félagslegri vellíðan nemenda með því að tryggja góð samskipti og öryggi innan hópsins. Í áfanganum er lýðræði haft að leiðarljósi og borin er virðing fyrir manngildium hvers og eins og tekið er tillit til áhuga nemenda og ábyrgðar þeirra á eigin námi. Nemendur eru hvattir til að láta sínar skoðanir í ljós og tekur kennari tillit til og hlustar á. Unnið er að því að skapa tækifæri fyrir alla til að þroskast á eigin forsendum, rækta hæfileika sína og lifa ábyrgu lífi í frjálsu samfélagi í anda skilnings, friðar, umburðarlyndis, víðsýnis og jafnréttis. Sköpun er tekin fyrir en lögð eru fyrir verkefni sem byggja á gagnrýninni hugsun nemenda með aðferðum sem opna sífellt nýja möguleika, mótun viðhorfa, gildismats og hæfni. Nemendur hafa tækifæri til að hafa áhrif á skólastarfið s.s. með skipulag og námsmat.