HAGF2ÞF05 - Hagfræði - Þjóðhagfræði og fjármálalæsi
Undanfari : Enginn
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Nemendur fá innsýn í helstu grunnhugtök og meginviðfangsefni hagfræðinnar. Fjallað er um grunneiningar hagkerfisins og samspil þeirra í markaðsþjóðfélagi. Hringrás efnahagslífsins er útskýrð og fjallað um helstu hagstærðir þjóðarbúsins og tengsl þeirra. Í áfanganum er einnig fjallað um gildi fjármála fyrir einstaklinginn, fyrirtækið og samfélagið með því að skoða ábyrgð á sviði fjármála, eðli kapítalísks markaðshagkerfis, eðli peninga, fjármálastofnanir, tekjur, útgjöld, sparnað, lánamál og fleira.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu hugtökum hagfræðinnar
- hvernig hlutverki hins opinbera er háttað
- mikilvægi utanríkisviðskipta fyrir hagkerfi eins og það íslenska
- gengi gjaldmiðla og áhrif gengis á viðskipti í víðum skilningi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa og skilja fréttir um hagfræðileg málefni
- afla sér upplýsinga um hagfræðileg málefni
- reikna og túlka hagstærðir eins og verðbólgu, vexti, hagvöxt og fleira
- gera sitt eigið skattframtal
- fara með peninga í samræmi við eigin markmið í lífinu
- greina fjármálahugtök
- geta tekið skynsamlegar ákvarðanir um lán og sparnað
- temja sér persónuþróun á sviði fjármála
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- taka þátt í umræðum um hagfræðileg málefni
- taka upplýstar ákvarðanir um eigin fjármál
- gera sér grein fyrir hvernig hagkerfi starfar og helstu verkefnum sem aðilar hagkerfisins takast á við
- vera læs á samfélagið og helstu stoðir hagkerfisins
- afla sér frekari þekkingar um fjármál og geta nýtt sér upplýsingatækni og Netið við öflun upplýsinga og lausn verkefna sem tengjast fjármálaviðfangsefnum
Grunnþættir menntunar
Í þessum áfanga nýta nemendur sér læsi til að öðlast hæfni til að skynja og skilja umhverfi sitt og samfélag á gagnrýninn hátt og taka þátt í að móta það. Nemendur eru virkir þátttakendur í að skapa eigin merkingu og bregðast á persónulegan og skapandi hátt við því sem þeir lesa með hjálp þeirra miðla og tækni sem völ er á. Þeir nýta sér til gagns tölulegar upplýsingar og nota og miðlað upplýsingum á gagnrýninn og skapandi hátt. Í áfanganum birtist heilbrigði og velferð með því að kennari hugi eftir bestu getu að félagslegri vellíðan nemenda með því að tryggja góð samskipti og öryggi innan hópsins. Í áfanganum er lýðræði haft að leiðarljósi og borin er virðing fyrir manngildium hvers og eins og tekið er tillit til áhuga nemenda og ábyrgðar þeirra á eigin námi. Nemendur eru hvattir til að láta sínar skoðanir í ljós og tekur kennari tillit til og hlustar á. Unnið er að því að skapa tækifæri fyrir alla til að þroskast á eigin forsendum, rækta hæfileika sína og lifa ábyrgu lífi í frjálsu samfélagi í anda skilnings, friðar, umburðarlyndis, víðsýnis og jafnréttis. Sköpun er tekin fyrir en lögð eru fyrir verkefni sem byggja á gagnrýninni hugsun nemenda með aðferðum sem opna sífellt nýja möguleika, mótun viðhorfa, gildismats og hæfni. Nemendur hafa tækifæri til að hafa áhrif á skólastarfið s.s. með skipulag og námsmat.