FÉLA2LO05 - Félagsfræði - Félagsfræði umhverfis og loftslagsbreytinga

Undanfari : Enginn
Í boði : Haust

Lýsing

Áfanginn fjallar um félagsfræðileg sjónarhorn á loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á samfélög, menningu og efnahag. Nemendur kynnast sögulegri þróun, alþjóðapólitík, tæknilausnum og sjálfbærni með fjölbreyttum verkefnum sem stuðla að gagnrýnni hugsun og skapandi nálgun. Lögð er áhersla á að tengja kenningar við raunveruleg dæmi og styrkja hæfni til að greina og takast á við loftslagsáskoranir.

 

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • skilja sögulega þróun loftslagsmála og helstu áskoranir sem hafa mótað hana
  • þekkja vísindalegar staðreyndir um loftslagsbreytingar og viðbrögð við loftslagsafneitun
  • skilja kenningar og hugmyndafræði um loftslagsbreytingar
  • þekkja áhrif loftslagsbreytinga á lýðfræði, samfélög og efnahagskerfi
  • fá innsýn í hvernig neysluhyggja og óþarfa lúxus Vesturlanda hefur áhrif á kolefnisspor
  • skilja hlutverk alþjóðapólitíkur og stefnumótunar í loftslagsmálum
  • þekkja tæknilausnir eins og hafa framtíðarsýn í loftslagsmálum


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina flótta frá loftslagsvandamálum og áhrif þeirra á ólíkar samfélagsgerðir
  • útskýra hvernig menning, listir, trúarbrögð og heimspeki hafa áhrif á loftslagsbaráttuna
  • taka þátt í umræðum um framtíðarsviðsmyndir og mögulegar aðgerðir gegn loftslagsbreytingum
  • beita fjölbreyttum aðferðum eins og fréttagreiningum og heimasíðugreiningum til að meta og rökstyðja áhrif loftslagsbreytinga

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • greina áhrif loftslagsbreytinga á atvinnulíf og heilsu og tengja það við raunverulegar lausnir
  • framkvæma sjálfstæðar heimildagreiningar og skila þeim í verkefnabók
  • nota skapandi aðferðir eins og leikjabækur og verkefnabækur til að dýpka skilning á efninu
  • meta hlutverk alþjóðlegrar samvinnu í matvælaframleiðslu og sjálfbærum lausnum

 

Grunnþættir menntunar

Grunnþættir menntunar koma skýrt fram í áfanganum, einkum sjálfbærni, samfélagsleg ábyrgð og gagnrýnin hugsun. Nemendur skoða loftslagsbreytingar sem félagslegt, menningarlegt, efnahagslegt og pólitískt viðfangsefni og greina áhrif þeirra á ólíka hópa, samfélög og lífsskilyrði. Umfjöllun um loftslagsréttlæti, neysluhyggju, kolefnisspor, lýðfræði, alþjóðasamvinnu og stefnumótun tengir áfangann einnig við lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og heilbrigði og velferð. Með fréttagreiningum, heimasíðugreiningum, heimildavinnu, framtíðarsviðsmyndum og skapandi verkefnum efla nemendur læsi, gagnalæsi, röksemdafærslu og hæfni til að ígrunda lausnir á loftslagsvanda samtímans.