FABL2GR05 - Fab Lab - Grunnáfangi

Undanfari : ?Óákveðið
Í boði : Haust

Lýsing

Markmiðið er að nemendur kynnist möguleikum stafrænnar tækni, frjálsum hugbúnaði, Fab Lab smiðju og öðlist grunnfærni í að nota tækni 21. aldarinnar með stafrænum framleiðsluaðferðum. Nemendur kynnast áhöldum FAB Lab smiðjunnar í gegnum verkefni sem eru fyrst unnin í tölvu og svo í smiðjunni. Kennt er á gjaldfrjáls tvívíddar og þrívíddar teikniforrit sem henta fyrir hönnun og auka við mögulega nýsköpun. Verkefni eru framkvæmd m.a. í laserskera, vínylskera, þrívíddar prentara og fræsara. Lögð er áhersla á hugtakið nýsköpun og að nemandinn öðlast færni til að virkja sköpunarkraft sinn og koma þeirri þróun í framkvæmd í FabLab-smiðjunni.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • FabLab-smiðju
  • stafrænni framleiðslutækni
  • tvívíddar- og þrívíddarhönnun, teikningum
  • frjálsum hugbúnaði fyrir tvívíddar- og þrvíddarhönnun
  • hönnun og framleiðsluferli á 21. öldinni
  • 3D prentara, vínylskera, hitapressu 3D skönnun, 3D prentara
  • skrásetningu á ferli


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • setja upp frjálsan hugbúnað
  • nota stafrænan tækjabúnað við hönnun
  • útbúa rafræn skjöl fyrir vélar í Fab Lab
  • nota laserskurðartæki við hönnun
  • nota vínylskera og hitapressu
  • skanna í 3D og prenta í þrívíddarprentara


Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta sett upp hugbúnað fyrir stafræna hönnun
  • geta notað 3D skanna, vínylskera, laserskera og 3D prentara í hönnun
  • lesa og vinna eftir leiðbeiningum
  • þróa hugmyndir sjálfstætt og undir leiðsögn
  • skrá ferli, meta og rökstyðja vinnu sína
  • geta hannað, teiknað og framleitt eigin afurð

 

Grunnþættir menntunar

Grunnáfanginn í Fab Lab er kjörinn vettvangur fyrir grunnþætti menntunar – sérstaklega sköpun, læsi og sjálfbærni. Sköpun er rauður þráður gegnum allt námið þar sem nemendur fá tækifæri til að virkja sköpunarkraft sinn í gegnum stafræna framleiðsluaðferðir; þeir hanna, framleiða og þróa eigin afurðir með laserskera, vínylskera, þrívíddarprentara og fræsara. Mistökum er tekið sem hluta af lærdómsferlinu og nemendur eru hvattir til að prófa sig áfram, gera tilraunir og finna eigin leiðir. Lokaverkefnið, þar sem nemendur velja sér viðfangsefni og bera ábyrgð á útfærslunni, dýpkar frumkvæði og skapandi hugsun.

Læsi er útvíkkað á margan hátt: nemendur læra að lesa úr stafrænum skjölum og teikningum (tæknilæsi), nýta sér frjálsan hugbúnað og afla sér upplýsinga á netinu (upplýsingalæsi), og miðla eigin ferli og afurðum í rafrænni ferilmöppu (miðlalæsi). Þeir læra að setja fram, rökstyðja og kynna eigin verk, sem byggir undir sjálfstraust og málfærni.

Sjálfbærni kemur skýrt inn í gegnum umfjöllun um nýsköpun og stafræna framleiðslu 21. aldarinnar. Nemendur íhuga efnisval, nýta endurvinnanlegt og umhverfisvænt efni þegar hægt er og læra að framleiðsla er ekki án afleiðinga. Umræðan um vistspor og ábyrga nýtingu auðlinda fléttast eðlilega inn í verkefnavinnuna.

Jafnrétti birtist í áherslunni á að allir nemendur, óháð fyrri reynslu, fái tækifæri til að þroska hæfileika sína í tæknigreinum sem hafa hingað til verið kynbundnar; lögð er áhersla á að námsval grundvallist á áhuga og styrkleikum frekar en staðalmyndum.

Lýðræði og mannréttindi birtast í virkri þátttöku nemenda í eigin námi – þeir velja viðfangsefni lokaverkefnis sjálfir, taka þátt í jafningjamati og kynningum og bera virðingu fyrir verkum annarra.