ENSK3YN05 - Enska - Yndislestur
Undanfari : ENSK3AO05
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Í áfanganum lesa nemendur valin bókmenntaverk og vinna að ýmsum kynningar-, greiningar- og ritunarverkefnum þeim tengdum, svo sem ritun gagnrýninna bókmenntaritgerða og skapandi textagerð á ensku.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- menningu og sögulegu samhengi valinna bókmenntaverka
- orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í námi og starfi
- notkun tungumálsins sem er nauðsynleg til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- tjá sig af öryggi um margvísleg málefni tengd bókmenntum og menningu
- lesa texta sem gera miklar kröfur til lesandans, ýmist hvað varðar orðaforða, uppbyggingu eða myndmál
- leggja gagnrýnið mat á texta
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita málinu af lipurð og kunnáttu til þess að geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum þar sem fjallað er um persónuleg, söguleg, félagsleg og menningaleg efni
- leggja gagnrýnið mat á texta
- flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinagerð, draga fram aðalatriði, rökstyðja mál sitt og bregðast við fyrirspurnum
- tjá tilfinningar, nota hugarflug, beita stílbrögðum og líkingamáli á skapandi hátt
- skrifa texta með röksemdafærslu
Grunnþættir menntunar
Í enskukennslu eru grunnþættir menntunar samofnir námsefni og kennsluháttum. Læsi, tjáning og samvinna eru þungamiðja námsins þar sem nemendur þjálfa sig í að lesa, skrifa, hlusta og tala á ensku í fjölbreyttu samhengi. Sköpun og gagnrýnin hugsun eru hlutaðeigandi þegar nemendur túlka texta, mynda sér skoðanir og tjá sig á persónulegan hátt. Lýðræðisleg gildi og virðing fyrir fjölbreytileika birtast í umræðum um menningu, samfélag og manngildi í enskumælandi heimi. Stafrænt læsi og miðlamennt eru æfð í gegnum fjölbreyttar verkefnategundir og notkun á fjölbreyttum textategundum.