ENSK3FS05 - Enska - Fjölbreyttur skilningur
Undanfari : ENSK3AO05
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Lögð er áhersla á að efla skilning. Nemendur vinna með og þjálfa krefjandi orðaforða sem hjálpar þeim að skilja flókna og fjölbreytta texta. Nemendur vinna einnig með bókmenntaverk og texta sem dýpka enn skilning þeirra á orðgnótt enskrar tungu og menningu enskumælandi þjóða. Ritun nemenda endurspeglar þessar áherslur og sýnir að þeir hafa náð valdi á grundvallarþáttum tungumálsins. Áhersla verði lögð á eftirfarandi atriði: Krefjandi orðaforða, skilning daglegs máls, lipurlega beitingu mismunandi málsniða, ritun rökfærsluritgerða, framsögn, gagnrýninn lestur, og heimildaskráningu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- menningu, viðhorfum og gildum í tilteknum enskumælandi löndum
- orðaforða sem nauðsynlegur er til að standast hæfniviðmið þrepsins
- notkun tungumálsins sem er nauðsynleg til að standast hæfniviðmið þrepsins
- helstu hefðum um uppsetningu og skipulag ritaðs máls og notkun heimilda
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja fjölbreytt mál
- lesa margs konar gerðir texta
- beita málfari við hæfi í samskiptum og koma sínum skoðunum á framfæri á ensku
- tjá sig um málefni bæði með óformlegum og formlegum hætti
- skrifa margs konar texta, þar á meðal rökfærsluritgerð og heimildaritgerð
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja fjölbreytt talað mál
- tileinka og nýta sér efni ritaðs texta
- lesa texta og geta tjáð sig munnlega eða skriflega um efni þeirra og færa rök fyrir sjónarmiðum sínum
- tjá sig á skýran og áheyrilegan hátt
- skrifa læsilegan texta um efni frá eigin brjósti sem og færa rök fyrir skoðunum sínum
Grunnþættir menntunar
Í enskukennslu eru grunnþættir menntunar samofnir námsefni og kennsluháttum. Læsi, tjáning og samvinna eru þungamiðja námsins þar sem nemendur þjálfa sig í að lesa, skrifa, hlusta og tala á ensku í fjölbreyttu samhengi. Sköpun og gagnrýnin hugsun eru hlutaðeigandi þegar nemendur túlka texta, mynda sér skoðanir og tjá sig á persónulegan hátt. Lýðræðisleg gildi og virðing fyrir fjölbreytileika birtast í umræðum um menningu, samfélag og manngildi í enskumælandi heimi. Stafrænt læsi og miðlamennt eru æfð í gegnum fjölbreyttar verkefnategundir og notkun á fjölbreyttum textategundum.