ENSK3FO05 - Enska - Orðaforði og áhugasvið
Undanfari : ENSK3AO05
Í boði
: Haust
Lýsing
Unnið með fagorðaforða þar sem nemendur byggja upp sinn eigin orðaforða tengt sérsviði hvers og eins. Fjölbreytt ritunarverkefni þar sem nemendur nota þann orðaforða sem þeir eru að byggja upp. Einnig er unnið með munnlega færni þar sem nýr orðaforði er virkjaður. Að auki verður mikið unnið með akademískar greinar bæði til að auka orðaforða og lesskilning en einnig til að þjálfa gagnrýna hugsun.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi
- hefðum sem eiga við um talað og ritað mál, t.d. mismunandi málsnið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja vel sérhæfða texta sem hann þekkir
- lesa, sér til ánægju eða upplýsingar, texta sem gera miklar kröfur til lesandans, ýmist hvað varðar orðaforða og uppbyggingu eða myndmál og stílbrögð
- nota tungumálið á sveigjanlegan og árangursríkan hátt í samræðum
- beita ritmálinu í mismunandi tilgangi, fræðilegum og persónulegum, með stílbrigðum og málsniði sem við á og mætir hæfniviðmiðum þrepsins
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um efni sem hann hefur þekkingu á
- skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókið efni, fræðilegs eða tæknilegs eðlis
- geta lagt gagnrýnið mat á texta
- hagnýta sér fræðitexta og meta heimildir á gagnrýninn hátt
- lýsa skýrt og greinilega flóknum hlutum eða ferlum á sviði sem hann þekkir vel
- vinna efni úr ýmsum upplýsingaveitum og fella saman í eina heild samkvæmt þeim hefðum sem gilda um heimildavinnu
- skrifa gagnorðan og skilmerkilegan texta sem tekur mið af því hver lesandinn er
Grunnþættir menntunar
Í enskukennslu eru grunnþættir menntunar samofnir námsefni og kennsluháttum. Læsi, tjáning og samvinna eru þungamiðja námsins þar sem nemendur þjálfa sig í að lesa, skrifa, hlusta og tala á ensku í fjölbreyttu samhengi. Sköpun og gagnrýnin hugsun eru hlutaðeigandi þegar nemendur túlka texta, mynda sér skoðanir og tjá sig á persónulegan hátt. Lýðræðisleg gildi og virðing fyrir fjölbreytileika birtast í umræðum um menningu, samfélag og manngildi í enskumælandi heimi. Stafrænt læsi og miðlamennt eru æfð í gegnum fjölbreyttar verkefnategundir og notkun á fjölbreyttum textategundum.