ENSK3BK05 - Enska - Bresk og bandarísk menning
Undanfari : ENSK3AO05
Í boði
: Haust
Lýsing
Nemendur fá innsýn í breska og bandaríska menningu með því að skoða sögu, menningu og stjórnskipun í Bretlandi og Bandríkjunum og lesa nemendur bókmenntaverk þaðan. Námið miðar að því að nemendur þjálfist í enskri tungu og bæti við orðaforða sinn og málskilning. Nemendur eru þjálfaðir í ritun enskrar tungu með skrifleg verkefni og vinna þýðingar yfir á ensku. Nemendur eru einnig þjálfaðir í töluðu máli, bæði með styttri umræðum á ensku og formlegum fyrirlestri á ensku um efni sem tengist breskri og/eða bandarískri menningu. Nemendur munu einnig nota Internetið sér til fróðleiks og efnisöflunar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- sögu, menningu og stjórnskipun í Bretlandi og Bandaríkjunum
- völdum breskum og bandarískum bókmenntum
- þeirri notkun tungumálsins sem er nauðsynleg til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
- orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi og starfi
- hefðum sem eiga við um talað og ritað mál í ensku
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita ritmáli í mismunandi tilgangi
- tjá sig um margvísleg málefni þar sem lögð er áhersla á færni í tungumálinu
- nýta tungumálið í almennum samræðum
- lesa texta sem gera miklar kröfur til lesandans, hvað varðar orðaforða, uppbyggingu og myndmál
- skilja almennt talað mál með mismunandi framburði
- skilja sérhæfða jafnt sem almenna texta um hinar ýmsu hliðar bresks og bandarísks mannlífs
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja sér til gagns þegar fjallað er um fræðilegt efni sem tengist breskri og bandarískri menningu
- leggja gagnrýnið mat á texta
- hagnýta sér fræðitexta, myndefni og umræður um efni sem tengist Bretlandi og Bandaríkjunum
- beita málinu og taka þátt í umræðum um ýmis mál
- flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð og bregðast við fyrirspurnum
- beita rithefðum sem við eiga í textasmíð
- vinna úr heimildum og skrá þær viðurkenndan hátt
- skrifa gagnorðan, skilmerkilegan og vel uppbyggðan texta sem tekur mið af lesanda
- skrifa texta með röksemdafærslu
- tjá tilfinningar og nota hugarflugið í rituðu máli
Grunnþættir menntunar
Í enskukennslu eru grunnþættir menntunar samofnir námsefni og kennsluháttum. Læsi, tjáning og samvinna eru þungamiðja námsins þar sem nemendur þjálfa sig í að lesa, skrifa, hlusta og tala á ensku í fjölbreyttu samhengi. Sköpun og gagnrýnin hugsun eru hlutaðeigandi þegar nemendur túlka texta, mynda sér skoðanir og tjá sig á persónulegan hátt. Lýðræðisleg gildi og virðing fyrir fjölbreytileika birtast í umræðum um menningu, samfélag og manngildi í enskumælandi heimi. Stafrænt læsi og miðlamennt eru æfð í gegnum fjölbreyttar verkefnategundir og notkun á fjölbreyttum textategundum.