DÓMA2BG02 - Dómgæsla - knattspyrna

Undanfari : Enginn
Í boði : Alltaf

Lýsing

Þessi áfangi gefur innsýn inn í grunnatriði knattspyrnudómgæslunnar, fer yfir knattspyrnulögin, ábyrgð knattspyrnudómara ásamt verklegum æfingum innandyra og dómgæslu knattspyrnuleikja í nærumhverfinu. Gert er ráð fyrir að kennt sé í sex lotum yfir önnina ásamt því að nemendur þurfa að dæma leiki undir eftirliti kennara frá KSÍ.