BÓKF3FS05 - Bókfærsla - Fyrningar, afföll, slit og stofnun fyrirtækja
Undanfari : BÓKF2BF05
Í boði
: Alltaf
Lýsing
Gert er ráð fyrir að nemendur sem hefja nám í þessum áfanga hafi fullt vald á bókhaldshringrásinni, geti hafið bókhald og lokað því samkvæmt reglum tvíhliða bókhalds. Þessi kunnátta er dýpkuð verulega meðal annars með erfiðari færslum. Farið yfir bókun á helstu reikningum fyrirtækja; notkun fyrningareikninga við afskriftir eigna, bókun hluta- og skuldabréfa og notkun affallareiknings. Einnig er farið yfir bókanir sem varða innflutning; tollafgreiðslu, greiðslu virðisaukaskatts í tolli, kostnað og fyrirkomulag við geymslu á vörum í tollvörugeymslu. Uppgjörsfærslum er haldið áfram í gegnum reikningsjöfnuð. Farið er yfir bókanir í sambandi við stofnun og slit fyrirtækja, breytingar á réttarformi, samruna og fjárhagsleg endurskipulagningu fyrirtækja.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu innflutningsskjölum vegna tollafgreiðslu og greiðslu virðisaukaskatts í tolli
- lögum um toll og virðisaukaskatt af innflutningi
- færslum vegna innflutnings á vöru
- gengisbreytingum vegna erlendra viðskiptaskulda og/eða viðskiptakrafna
- kostnaði og fyrirkomulagi við geymslu á vöru í tollvörugeymslu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- reikna og bóka verðbætur, vexti og afborganir af óverðtryggðum og verðtryggðum skuldabréfum
- reikna og bóka færslur sem tengjast hlutabréfaeign, arði, gengisbreytingum, jöfnunarhlutabréfum o.s.frv.
- bóka færslur sem varða stofnun og slit félaga
- bóka færslur sem varða breytingu á réttarformi fyrirtækja, samruna og fjárhagslega endurskipulagningu þeirra
- meðhöndla mismunandi virðisaukaskattsþrep í bókhaldi
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- hefja bókhald með hliðsjón af fyrirliggjandi efnahagsreikningi eða stofnun fyrirtækis
- leysa af hendi lagfæringar í bókhaldi með hliðsjón af athugasemdum
- setja upp einfaldan rekstrar- og efnahagsreikning í lok reikningstímabils að teknu tilliti til athugasemda og lokafærslna
- færa tvíhliða bókhald fyrir lítinn og einfaldan atvinnurekstur
Grunnþættir menntunar
Í þessum áfanga nýta nemendur sér læsi til að öðlast hæfni til að skynja og skilja umhverfi sitt og samfélag á gagnrýninn hátt og taka þátt í að móta það. Nemendur nýta sér til gagns tölulegar upplýsingar. Í áfanganum birtist heilbrigði og velferð með því að kennari hugi eftir bestu getu að félagslegri vellíðan nemenda með því að tryggja góð samskipti og öryggi innan hópsins. Í áfanganum er lýðræði haft að leiðarljósi og borin er virðing fyrir manngildium hvers og eins og tekið er tillit til áhuga nemenda og ábyrgðar þeirra á eigin námi. Sköpun er tekin fyrir en lögð eru fyrir verkefni sem byggja á gagnrýninni hugsun nemenda með aðferðum sem opna sífellt nýja möguleika, mótun viðhorfa, gildismats og hæfni. Nemendur hafa tækifæri til að hafa áhrif á skólastarfið s.s. með skipulag og námsmat.