Upplýsingar - 10. bekkur

    Einkenni Fjölbrautaskóla Suðurnesja 

  • FS er skóli fyrir alla
  • Áfangakerfi
  • Fjölbreytt félagslíf
  • Mikið val um námsleiðir
  • Sveigjanleiki í námshraða
  • Mikið val um námsgreinar
  • Jákvæð samskipti og gagnkvæm virðing
  • Markviss undirbúningur fyrir störf á vinnumarkaði og/eða framhaldsnám

 

 

 

Spurt og svarað   

Hvar er skólinn staðsettur?

    Fjölbrautaskóli Suðurnesja er staðsettur við Sunnubraut 36 í Reykjanesbæ, í nágrenni við sundlaugina. Fjölbrautaskóli Suðurnesja er skóli Suðurnesjamanna. Nemendur hans eru úr öllum byggðarlögum svæðisins auk þess sem alltaf eru í skólanum nokkrir nemendur annars staðar frá. Sveitarfélögin fjögur á Suðurnesjum (Reykjanesbær, Grindavík, Suðurnesjabær og Vogar) reka skólann í samstarfi við ríkisvaldið.

Er bekkjakerfi eða áfangakerfi í skólanum?

Fjölbrautaskóli Suðurnesja er áfangaskóli og hefur verið það frá stofnun. Í haust verður hins vegar farið af stað með tilraunaverkefni og verður nýnemum raðað í bekki. Þetta kerfi verður aðeins á 1. ári nemenda en eftir það stunda þeir nám í áfangakerfi.

Bekkirnir miðast að mestu leyti við námsbrautir en einnig getur námsstaða nemenda haft áhrif. Nýnemar þurfa ekki að velja áfanga á fyrsta árinu. Að vori velur nemandinn áfanga fyrir næstu haustönn og fer þá yfir í áfangakerfi.

Markmiðið með þessari tilraun er að efla félagsleg tengsl nýnema og efla skuldbindingu þeirra til námsins. Í því felst að nemendur mæti vel, nái góðum námsárangri og fái þann stuðning sem þau þurfa.

Með þessari breytingu er stefnt að því að efla utanumhald um nemandann, veita honum viðeigandi þjónustu og skapa festu í námi. Með þessu fyrirkomulagi er ætlunin að efla tengsl nemenda sín á milli og við skólann, vonandi til framtíðar.

Flestir framhaldsskólar landsins eru annað hvort bekkjaskólar eða áfangaskólar og með þessari breytingu er nemendum gefinn kostur á að upplifa bæði kerfin í skólanum.

Vegna þessarar breytingar á skráningu nemenda í skólann er nauðsynlegt að umsækjendur velji Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem 1. eða 2. val við innritun í framhaldsskóla. Ef nemandi er með FS sem 2. val og fær inngöngu í skólann sem var 1. val þá er ekki hægt að lofa nemandanum plássi í bekk í FS ef hann hættir við að stunda nám í hinum skólanum. Það sama á við ef nemandi velur tvo aðra framhaldsskóla við innritun en sækir síðar um nám í Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

Hver eru inntökuskilyrðin?

      Inntökuskilyrðin eru mismunandi eftir brautum
sjá hér

Hvaða námsbrautir eru í boði?

      Fjölbrautaskóli Suðurnesja býður upp á fjölbreytt nám þar sem flestir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi
sjá hér

Hvað eru margir nemendur í skólanum?

    Fjölbrautaskóli Suðurnesja er stór skóli með um 900 nemendur á fjölmörgum brautum.

Hver eru innritunargjöldin?

        Fullt innritunargjald í FS er 17.500 kr
sjá hér

Hvernig er námsmatið í skólanum?

    Námsmatið byggir á símati og á lokaprófum. Símat þýðir dreift álag yfir alla önnina og mikið um verkefnavinnu og smærri próf. Nemendur geta komist hjá lokaprófum í sumum áföngum með því að ná ákveðinni einkunn yfir önnina. Í ákveðnum áföngum eru lokapróf og gilda þau yfirleitt 40-60% á móti verkefnavinnu yfir önnina. Í hverjum og einum áfanga er námsmatið útlistað í kennsluáætlun.

Hvernig er félagslífið í skólanum?

    Félagslífið er fjölbreytt og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. 

Get ég fengið framhaldsskólaáfanga úr öðrum skólum metna í FS?

        Já áfangastjórar meta áfanga úr öðrum skólum ef áfanginn passar inn í námskrá og námsbraut nemandans, sjá nánar
Sjá hér
Get ég fengið tónlistar-, listdans- eða myndlistarnám metið?
    Já nemendur sem óska eftir mati þurfa að hafa samband við áfangastjóra.

Má ég sleppa íþróttum ef ég æfi íþróttir?

    Já nemendur sem stunda umfangsmikla hreyfingu á vegum sérsambands og/eða íþróttafélags innan ÍSÍ (og er þátttakandi í Íslands- og/eða bikarmótum á þeirra vegum) geta fengið það metið.

Með umfangsmiklum íþróttum er átt við að nemandi sé að æfa íþrótt sína a.m.k. 4 sinnum í viku og undir leiðsögn menntaðs þjálfara/íþróttakennara.

Hvernig er þetta gert?

1. Í upphafi annar sendir þjálfari Elínu Rut Ólafsdóttur elin.rut.olafsdottir@fss.is upplýsingar um íþróttaiðkun nemanda s.s. hve oft og lengi í viku er æft og stutta lýsingu á æfingaplani annarinnar.

2. Þegar þjálfari hefur sent Elínu þessar upplýsingar kemur nemandinn til Elínar og hún skráir viðkomandi í íþróttir, ÍÞRÓ1ÍÆ01 áfanga í INNU. Nemandinn fær einnig blað sem hann geymir þar til í lok annarinnar, en þá skrifar þjálfari þar undir til að staðfesta að viðkomandi hafi stundað æfingar á önninni.

3. Mikilvægt er að nemendur muni eftir að skila blaðinu UNDIRRITUÐU í lok annarinnar til að fá eininguna.

Þetta er auglýst í skólanum og nemendur fá tölvupóst um þetta í upphafi anna.

Er afreksíþróttasvið í FS?

    Já FS býður upp á afreksíþróttasvið. FS vill styðja við nemendur sem vilja stunda sína íþrótt með álagi afreksíþróttamanna, samhliða námi á skólatíma.
    Það er misjafnt eftir önnum hvaða íþróttagreinar hafa verið í boði. Á þessu skólaári var knattspyrna og körfubolti. Á næsta skólaári er vilji fyrir því að bjóða upp á fleiri íþróttagreinar.
  • Nemendur skrá sig á braut og eru á íþróttaafrekssviði samhliða brautinni
  • Nemendur eru virkir iðkendur í íþróttafélagi og stundi sína íþrótt af metnaði
  • Meðmæli frá íþróttafélagi
  • Nemendur á íþróttaafrekssviði greiða hefðbundin skólagjöld og að auki kr. 30.000 á önn.

Er tekið tillit til námserfiðleika, t.d. lesblindu og ADHD?

    Já en þá er mikilvægt að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa í upphafi skólagöngu svo hægt sé að finna út hvernig aðstoð virkar best. Ef nemendur vilja fá sérúrræði í prófum eða taka próf í sérstofu eiga þeir kost á því. Allir nemendur fá lengri próftíma í lokaprófum og þarf ekki að óska sérstaklega eftir því. Gott er að hengja greiningu við umsókn eða koma með afrit greiningar til námsráðgjafa við upphaf skólagöngu.

Þarf ég að hafa fartölvu til umráða sem nemandi?

    Nei en það er æskilegt að nemendur hafi aðgang að tölvu heima hjá sér. Nemendur eiga kost á því að fá lánaðar fartölvur á bókasafni skólans á skólatíma.