Samkvæmt gildandi lögum um framhaldsskóla ber öllum framhaldsskólum á landinu að meta skólastarfið reglulega, þar á meðal kennslu- og stjórnunarhætti, samskipti innan skólans og tengsl við aðila utan skólans. Á fimm ára fresti er síðan gerð úttekt á sjálfsmatsaðferðum skólanna.
Árið 1998 var stofnuð formleg matsnefnd í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og sjálfsmatskerfi skólans var þróað af henni. Í núverandi nefnd sitja Garðar Þór Garðarsson, Guðmundur Grétar Karlsson, Haukur Viðar Ægisson og Guðlaug M. Pálsdóttir. Í skólanámskrá hafa verið sett fram markmið og er reglulega kannað hvort þau hafi náðst.
Á hverri önn eru ólíkir þættir skólastarfsins metnir en kennslumat fer þó alltaf fram þar sem kennsla um fjórðungs kennara er metin í hvert skipti. Starfsmannaviðtöl viðkomandi kennara og skólastjórnenda fara fram í kjölfar kennslumatsins.
Haustið 2022 gerði menntamálaráðuneytið síðast úttekt á sjálfsmatsaðferðum FS og uppfyllir skólinn bæði viðmið ráðuneytisins um sjálfsmatsaðferðir og um framkvæmd sjálfsmats.
Hér fyrir neðan má sjá þá þætti skólastarfsins sem metnir eru reglulega.
Viðfangsefni |
H2022 |
V2023 |
H2023 |
V2024 |
H2024 |
V2025 |
H2025 |
V2026 |
Kennsla og nám |
Kennslumat |
x |
x |
x |
x |
x |
x |
x |
x |
Mat á lærdómssamfélagi |
|
x |
|
|
|
|
|
|
Stjórnun og skipulag |
Móttaka nýrra starfsmanna |
|
x |
|
|
|
x |
|
|
Stefnur, verkferlar og áætlanir |
x |
x |
x |
x |
x |
x |
x |
x |
Innra mat - Matshringur |
x |
|
x |
|
x |
|
x |
|
Stjórnendur |
|
|
x |
|
|
|
|
|
Skólabragur |
Félagslíf nemenda |
x |
|
|
x |
|
|
x |
|
Móttaka nýrra nemenda |
x |
|
|
|
x |
|
|
|
Líðan nemenda/RogG |
|
x |
x |
|
x |
|
x |
|
Líðan starfsmanna |
|
x |
|
|
x |
|
|
x |
Húsnæði, búnaður og þjónusta |
Mötuneyti |
|
x |
|
|
|
x |
|
|
Vinnuaðstaða kennara og starfsmanna |
|
|
x |
|
|
x |
|
|
Búnaður til náms og kennslu |
x |
x |
x |
x |
x |
x |
x |
x |
Samskipti nemenda við aðra starfsmenn |
|
|
|
x |
|
|
|
x |
Síðast breytt: 4. maí 2023