dans, leikir og samvinna, Íþróttir
Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Áfanginn er verklegur. Meginviðfangsefni áfangans er fjölbreytt líkamsrækt í formi dansíþróttar Áhersla er lögð á jákvæð samskipti kynjanna. Áfanginn inniheldur mismunandi kynningarþætti, s.s. barnadansa, hringdansa, skottís, polka, marsa, kúrekadansa, cha-cha-cha, samba, jive, mambó og fleira skemmtilegt. Unnið er með atriði eins og samvinnu, tillitsemi og háttvísi. Nemendur eru hvattir til að rækta líkama sinn sér til heilsubótar og ánægju
Þekkingarviðmið
- tilgangi danslistarinnar sem ákveðnu tjáningar og hreyfingarformi
- mikilvægi hreyfingar
- fjölbreyttum dönsum
- fjölbreyttum leikjum
- gildi þess að geta dansað
- taktvinnslu
- leiðum til að nýta dans og leiki sér til heilsubótar og ánægju
- gildi samvinnu, umburðarlyndis, virðingar í leik, námi og starfi
Leikniviðmið
- dansa
- iðka ýmsa leiki til að efla líkama og sál
- fylgja takt við tónlist
- tjá sig með hreyfingu
- nota rétta líkamsbeitingu
- vinna með öðrum að lausnum verkefna
- taka tillit og hvetja aðra
Hæfnisviðmið
- dansa og vera óhræddur við að læra nýja dansa
- semja dansspor í takt við tónlist
- stunda hreyfingu án mikils tilkostnaðar
- sýna sjálfstæði, öryggi og velja hreyfingu við hæfi
- sýna öðrum virðingu við leik, nám og störf
- vinna að bættri heilsu í samvinnu við aðra
- styrkja jákvæða sjálfsmynd með þátttöku í leikjum og dansi
Nánari upplýsingar á námskrá.is