strjál stærðfræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: STÆR3HI05
Efnissvið áfangans eru mengjafræði, rökfræði, talningarfræði, talnafræði Fibonacci runan og tengsl hennar við gullinsnið. Náttúrlegar tölur eru sameiginlegt viðfangsefni þessara sviða. Helstu efnisatriði eru: Mengi, vensl, varpanir og helstu hugtök varðandi þessi atriði, talningarfræði, rökreglur, mótdæmi, rakning, þrepun, deilanleiki talna og frumtölur, sætiskerfi með öðrum grunntölum en 10
Þekkingarviðmið
- helstu mengjahugtökum og mengjareikningi
- aðferðum úr talningarfræði
- helstu hugtökum og aðferðum stærðfræðilegrar rökfræði
- undirstöðuhugtökum talnafræðinnar
- sætiskerfi með öðrum grunntölum en 10
- stærðfræðilegri þrepun
- Fibonacci rununni, gullinsniði og Pascal þríhyrningnum
Leikniviðmið
- beita helstu reglum um mengjaaðgerðir
- reikna fjölda umraðana og samantekta
- nota þrepun til að sannreyna ályktanir út frá þrepunarskilgreiningum
- finna minnsta samfeldi, bæði með frumþáttun og reikniriti Evklíðs
- umrita tölur í önnur talnakerfi en tugakerfið
- rita sanntöflur og lesa úr þeim
- nota Pascal þríhyrninginn
Hæfnisviðmið
- útskýra helstu sannanir sem koma fyrir í námsefni áfangans
- fella stærðfræðileg viðfangsefni inn í þá þekkingu og færni sem hann býr yfir
- teikna skýringarmyndir til að glöggva sig á vandamálum sem fyrir liggja
- nýta stærðfræðileg líkön til að fást við aðrar fræðigreinar
- skilja og taka þátt í að hanna stærðfræðileg líkön sem sniðin eru að ákveðnum viðfangsefnum
- skilja að það sé ekki sjálfsagt að verkefni hafi lausnir, hvorki einföld jafna né stór viðfangsefni
- skilja hvaða eiginleikar talna eru háðir talnarituninni og hverjir ekki
Nánari upplýsingar á námskrá.is