Veisluhöld
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Sérstök áhersla verður á veisluhöld og verklagi sem tengist því að undirbúa og halda veislur. Notast verður við fjölbreyttar uppskriftir og áhersla verður á mikilvægi hreinlætis við heimilisstörf.
Þekkingarviðmið
- Að skipuleggja þarf afmæli og annars konar veislur með góðum fyrirvara
- Að áætla þarf magn veitinga út frá fjölda gesta
- Helstu áhöldum og tækjum í eldhúsi
- Að hægt er að leita leiða á fjölbreyttan hátt
- Mikilvægi hreinlætis við heimilisstörf
Leikniviðmið
- Útbúa innkaupalista miðað við fjölda gesta
- Fara eftir uppskriftum
- Taka til viðeigandi hráefni í réttum skammtastærðum
- Viðhafi viðeigandi hreinlæti
- Nota viðeigandi öryggisbúnað
- Leggja á veisluborð fyrir réttan fjölda og mismunandi tilefni
Hæfnisviðmið
- Skipuleggja og halda veislu
- Lesa mismunandi uppskriftir og vinna eftir þeim
- Ganga frá í eldhúsi
- Fara eftir almennum hreinlætiskröfum
- Fara eftir almennum öryggisatriðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is