Nemendur í sóttkví
- Allir nemendur sem þurfa að fara í sóttkví verða að hafa samband við skrifstofu skólans og láta vita
- Nemendur geta prentað út staðfestingu um sóttkví á Heilsuveru sem skila skal eða senda í tölvupósti á skrifstofu skólans að sóttkví lokinni. Netfangið er heba.ingvarsdottir@fss.is
- Mikilvægt er að nemendur fylgi kennsluáætlunum þannig að þeir dragist síður aftur úr í náminu
- Námsráðgjafar munu hafa samband við nemendur og aðstoða þá eftir þörfum, þeir munu jafnframt vera í sambandi við kennara
COVID 19
- Nemendur sem greinast með Covid 19 þurfa að hafa samband við skrifstofu skólans og láta vita. Námsráðgjafar munu í framhaldi hafa samband

Allar nánari upplýsingar má nálgast á síðu almannavarna - https://www.covid.is/