ÍÞRG2SK04 - Skíði

Skíði

Einingafjöldi: 4
Þrep: 2
Í áfanganum læra nemendur að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í skíðaíþróttinni. Lögð er áhersla á kennslu tækniatriða fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna. Áfanginn er bóklegur og verklegur

Þekkingarviðmið

  • tækniþáttum skíðaíþróttarinnar
  • skíðareglum
  • þjálfunaraðferðum
  • kennslufræði
  • skipulagi á þjálfun
  • sögu skíðaíþróttarinnar

Leikniviðmið

  • útbúa tímaseðla
  • eiga samskipti við iðkendur og alla þá sem koma að íþróttagreinni
  • framkvæma grunnæfingar í skíðaíþróttinni
  • þjálfa skíði

Hæfnisviðmið

  • geta þjálfað og leiðbeint börnum á skíðum
  • geta búið til þjálfunaráætlanir
Nánari upplýsingar á námskrá.is