SÁLF3LÍ05(SB) - Lífeðlisleg sálfræði

lífeðlisleg sálfræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: SÁLF2HS05 eða 20 f-einingar á 2 eða 3 hæfnisþrepi
Áfanginn er kynning á lífeðlislegri sálfræði. Fengist er við tengsl lífeðlifræðilegra og sálfræðilegra þátta. Fjallað er um taugakerfið: Netkerfi, taugasálfræðilega virkni, heilastöðvar, úttaugakerfi og byggingu og starfsemi taugafrumunnar og taugaboðefni. Einnig kynnast nemendur þeim hlutum hormónakerfisins sem þykja sálfræðilega áhugaverðastir. Samspil erfða og umhverfis er skoðað. Nemendur kynnist rannsóknaraðferðum í lífeðlislegri sálfræði og vinnubrögðum við gerð rannsóknarskýrslna.

Þekkingarviðmið

  • staðakenninguna og netkerfisnálgunina í lífeðlislegri sálfræði
  • helstu heilastöðvar
  • byggingu og starfsemi taugafrumunnar
  • boðefni
  • hormónakerfi
  • rannsóknaraðferðir í lífeðlislegri sálfræði
  • þekki algeng ensk hugtök í lífeðlislegri sálfræði

Leikniviðmið

  • í lesa sálfræðitexta
  • ræða sálfræði
  • beita aðferðafræði sálfræðinnar
  • bera saman hugtök og kenningar
  • hanna rannsóknir
  • skrifa rannsóknarskýrslur
  • geti teiknað einfaldar skýringarmyndir

Hæfnisviðmið

  • til að setja sálfræði í samhengi við einkalíf samfélag og fræðilegt starf
  • tjá sig skipulega í ræðu og riti og tekið þátt í umræðum um lífeðlislega sálfræði
  • geta stundað háskólanám sérstaklega í sálfræði, félagsvísindum, lífeðlisfræði og læknisfræði
Nánari upplýsingar á námskrá.is