FÉLA3MA05 - Mannfræði

mannfræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: FÉLA3KS05
Framhaldsáfangi í félagsfræði en grunnáfangi í mannfræði þar sem lögð er áhersla á að beita rannsóknaraðferðum og kenningum með það að markmiði að auka þekkingu nemenda á mannfræði sem fræðigrein. Jafnframt verður leitast við að þeir öðlist færni í að beita hugtökum og helstu kenningum greinarinnar. Lögð er áhersla á að nemendur þekki helstu fræðimenn greinarinnar, störf þeirra og skilji tilgang og markmið mannfræðirannsókna í sögulegu samhengi

Þekkingarviðmið

  • flóru mannkyns
  • frumstæðum samfélögum og menningu þeirra
  • gildi mannfræðirannsókna fyrir nútímasamfélagið
  • forverum mannkyns

Leikniviðmið

  • halda kynningu um tiltekið viðfangsefni
  • greina og skýra frá hvernig mannfræðileg þekking getur nýst í nútímasamfélagi
  • greina frá hvernig þættir eins og kynhlutverk geta verið skýrð með gleraugum mannfræðinnar
  • skilgreina ólík hugtök og nálganir mannfræðinnar
  • skýra hvernig hægt er að beita ólíkum kenningum í mannfræði
  • skýra hvernig beita á ólíkum aðferðafræðilegum sjónarhornum í mannfræði

Hæfnisviðmið

  • skilja helstu aðferðir greinarinnar og nýta sér kenningar hennar í leik og starfi
  • beita gagnrýnni hugsun í fræðilegri umræðu sem og í almennri umræðu
  • skilgreina og skýra helstu hugtök greinarinnar
Nánari upplýsingar á námskrá.is