EÐLI3VS05(SB) - Varmafræði og snúningur

Varmafræði, hringhreyfing, hverfiþungi, kjörgas

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: EÐLI2AF05
Framhaldsáfangi í eðlisfræði. Efnisatriði: Hitakvarðar, RMS-hraði gassameinda, algengasti hraði, Maxwell-Boltzmann dreifing, kjörgasjafnan, varmi, eðlisvarmi, varmarýmd, fasaskiptavarmi, varmaleiðni, varmageislun, varmaflæði, hringhreyfing, miðsóknarhröðun, miðsóknarkraftur, skrens, massamiðja, hverfiþungi, hverfitregða, kraftvægi, varðveisla hverfiþunga, snúningsorka, þyngdarlögmálið, lögmál Keplers, þyngdarstöðuorka, þyngdarmætti og eldflaugar. Í áfanganum eru gerðar eðlisfræðitilraunir

Þekkingarviðmið

  • tengslum hitastigs og hreyfingar sameinda
  • eðlisvarma og fasaskiptavarma ólíkra efna
  • lögmálum um varmaskipti
  • leiðum varmaflæðis
  • eiginleikum hringhreyfingar
  • samspili miðsóknarkrafts og annarra krafta
  • hverfitregðu, hverfiþunga og snúningsorku
  • lögmáli þyngdarverkunar
  • þriðja lögmáli Keplers
  • þyngdarstöðuorku og orkuvarðveislu á sporbaug

Leikniviðmið

  • finna lokahitastig í blöndu mismunandi efna við mismunandi hitastig í mismunandi fasa
  • finna hitastig inni í efnishlut út frá mismunandi umhverfishitastigi
  • beita orkuvarðveislu til að finna hraða á hringferli
  • finna leyfilegan hraða í beygju út frá brautarhalla og veggripi
  • nýta varðveislu hverfiþunga til að reikna snúning hluta með mismunandi lögun
  • nýta þyngdarlögmálið og þriðja lögmál Keplers til að komast að upplýsingum um braut reikihnattar
  • nýta orkuvarðveislu til að komast að upplýsingum um braut reikihnattar
  • leiða út eðlisfræðilögmál með algebru, deildun, heildun og rökleiðslu

Hæfnisviðmið

  • komast að tölulegum niðurstöðum um umhverfi sitt á grundvelli fyrirliggjandi gagna
  • framkvæma verklegar æfingar í eðlisfræði og vinna úr þeim og útskýra niðurstöður þeirra
  • afla gagna sjálfstætt um eðlisfræðilegt viðfangsefni á erlendu tungumáli og skilað skriflegri niðurstöðu
  • tengja eðlisfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar
Nánari upplýsingar á námskrá.is