LSTR1ST03 - Tónlist með áherslu á sígild tónskáld

Sígild tónlist

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Fjallað verður um ýmis sígild tónskáld frá 18. öld og að fyrri hluta 20. aldar.

Þekkingarviðmið

  • Hvað felst í hugtakinu sígild tónlist
  • Fjölbreytileika hljóðfæra í sígildri tónlist
  • Uppbyggingu mismunandi hljómsveita

Leikniviðmið

  • Að þekkja ýmis hljóðfæri sem notuð eru í sígildri tónlist
  • Að geta nefnt nokkur sígild tónskáld
  • Að geta nefnt nokkur sígild tónverk
  • Að geta tengt tónverk við höfund

Hæfnisviðmið

  • Greina áhugasvið sín varðandi sígilda tónlist
  • Geta tjáð öðrum áhugasvið sín varðandi sígilda tónlist
  • Geta hlustað fordómalaust á ýmis tóndæmi, og myndað og sagt skoðun sína á þeim
  • Taka þátt í umræðum um sígilda tónlist
Nánari upplýsingar á námskrá.is