SMFÉ1ÍL03 - Samfélagsfræði með áherslu á Ísland

Ísland

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með Ísland og Íslandskortið. Farinn verður hringur um landið og hin ýmsu sveitarfélög landsins kynnt. Skoðaðir verða nokkrir sameiginlegir þættir sveitafélaganna, ásamt því að skoða hvað gerir þau ólík. Sérstök áhersla verður á höfuðborgina Reykjavík.

Þekkingarviðmið

  • Nöfnum sveitarfélaga víðsvegar um Ísland
  • Fjölda íbúa á fyrirfram ákveðnum stöðum
  • Helstu kennileitum ákveðinna staða
  • Vinsælum ferðamannastöðum á Íslandi

Leikniviðmið

  • Nefna og aðgreina bæjarfélög á Íslandi
  • Setja sig í spor ferðamanns og ferðast á hina ýmsu staði
  • Leita mismunandi leiða í vinnuferlinu
  • Nálgast viðfangsefni á mismunandi hátt
  • Að beita mismunandi aðferðum í vinnuferlinu

Hæfnisviðmið

  • Ferðast um landið og taka þátt í umræðum um náttúruperlur Íslands
  • Taka eftir ólíkum viðfangsefnum
  • Greina á milli aðal- og aukaatriða
  • Hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
  • Lesa í og/eða nýta sér mismunandi upplýsingar í umhverfinu
  • Tjá eigin skoðanir
Nánari upplýsingar á námskrá.is