STAR1SS05 - Starfsnám með áherslu á sköpun í skóla

Sköpun í skóla

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla verður á efla verklag nemenda í ýmsum verkefnum sem þeir hafa áhuga á að vinna. Áfanginn er hugsaður sem undirbúningsáfangi fyrir þátttöku úti á vinnumarkaðinum eða til að mæta áhuga og hæfni nemenda í skapandi vinnubrögðum.

Þekkingarviðmið

  • Mikilvægi skipulags þegar verkefni eru unnin
  • Að þjálfun og undirbúningur er mikilvægur áður en farið er út á vettvang
  • Sköpun er ferli sem leiðir mann oft á framandi staði
  • Að hægt er að leita leiða á fjölbreyttan hátt
  • Að hægt er að nálgast viðfangsefnið á skapandi hátt

Leikniviðmið

  • Beita mismunandi verklagi
  • Vinna eftir skipulagi
  • Láta hæfileika sína njóta sín
  • Átta sig á atvinnuskapandi tækifærum í nærumhverfinu

Hæfnisviðmið

  • Vinna verkefni sjálfstætt eða eftir fyrirmælum
  • Hafa trú á eigin færni og sjálfstraust til þess að takast á við ný verkefni
Nánari upplýsingar á námskrá.is